Barnablaðið - 01.09.1975, Page 6

Barnablaðið - 01.09.1975, Page 6
í loftið. Svo gæti Drottin sýnt mér í hvaða átt ég ætti að fara til að finna kvrnar. Sagt og gert. Ég hrópaði til Jesú og minnti hann á, hvernig hann hafði hjálpað lærisveinum sínum forðum. Svo kastaði ég greininni upp í Ioftið. Pegar hún féll til jarðar, benti hún í vestur frá þeim stað, sem ég stóð. Ég treysti því alveg að Drottinn hefði heyrt bæn mína. Til að geta fylgt vísbendingunni, varð ég að fara í gegnum þétt, lágvaxið skógarkjarr. Ég hálf hljóp í gegnum regnblautt skógarkjarrið, um það bil 2 hundruð metra. Svo tók við stærri skógur. Hér var það töluvert dimmra, þess vegna varð ég að ganga hægar til að detta ekki um rætur og þúfur. Þegar ég hafði gengið um stund, reis snögglega einhver dökk þúst upp rétt við fætur mína. Undrun mín var mikil þeg- ar ég fann, að þetta var kálfur. Og rétt hjá hon- um risu á fætur nokkrar kýr. Eo það voru ekki okkar kýr. Við áttum sex fullorðnar kýr, en engan kálf. Einkennilegt, hugsaði ég. Það voru ekki þessar kýr sem ég hafði beðið Drottin að ég fyndi. En, hugsaði ég, þar eð ég hef fundið þessar kýr þýðir að ég verð að koma þeim heim fyrst, svo verða einhver ráð með okkar kýr. Ég hottaði á kýrnar og þær röltu af stað í gæsagangi eftir mjóum götutroðningunum. Ég gekk á eftir og gætti þess að allar kæmust heim. Þegar ég hafði gengið stuttan spöl, heyrði ég snögglega bjölluhljóm rétt fyrir framan mig. Af hljóðinu að dæma, átti þetta að vera okkar kýr. Það reyndist rétt vera. Þarna komu kýrnar okkar fram á stiginn sem ég var að fara um. Gleði mín var mikil. Drottinn hafði heyrt bæn mína og það sem meira var, hann svaraði henni. Ég þakkaði og lofaði Drottin þar sem ég gekk. Hann hafði ekki aðeins látið mig finna VEL SVARAÐ Kennari hafði veitt athygli greindum dreng í skólan- um. Einn dag gengur hann beint að honum og spyr: — Hvað er stormur? — Pað er vindur, sem er að flýta sér, svaraði drengurinn. 6 heimakýrnar, heldur einnig hinar, og kannaðist ég við nokkrar af þeim, þær átti bóndi sem ég þekkti. Ferðin hélt áfram gegnum dimman skóginn, meðan regnið streymdi niður. Vegurinn var erfiður. Ymist beinn eða bugðóttur. Kýrnar röltu því hægt og hikandi áfram. Svo lá stígur- inn fram með fjalli, var það þéttvaxið greni- trjám, sem gerðu enn meira myrkur. Rétt fyrir neðan, mætti ég tveimur mönnum, sem voru að leita að kúnum sínum. Þær höfðu eimiig horfið þetta kvöld. Nú þurftu þeir ekki að leita lengur, því kýrnar sem ég hafði fundið með hjálp Drottins, voru einmitt þeirra. Auðvitað glöddust þeir yfir að þurfa ekki að leita lengur í myrkri og rigningu. Það var góður spölur eftir heim, svo ég fékk nægan tíma til að tala um reynslu mína við þá. Þar sem þeir áttu ekki neina þekkingu á lífinu í Guði, fannst þeim þetta undarlegt, en ég reyndi að skýra þetta fyrir þeim eins vel og ég gat, að hafi maður samfélag við Jesúm, þá er það eðlilegt að fá bænasvar. Þeir trúðu mér fyrir því, að þeir hefðu heyrt þegar ég hrópaði til Guðs. Þeir voru á öðrum stað í skóginum nokkur hundruð metra frá þeim stað sem ég var, þó ekki lengra, en að þeir heyrðu greinilega bænahróp mitt. Þeir voru á heimleið, en snéru þá við og ákváðu að halda' leitinni áfram. Þess vegna mætti ég þeim þarna í skóginum. Um síðir komum við heim, og kýrnar voru reknar í fjósið. Allir urðu glaðir þegar ég sagði frá reynslu minni og við þökkuðum og lofuðum Guð fyrir náð og trúfesti. Ég hef mörgum sinnum hugsað um þetta at- vik, hvort það hafi ekki verið Drottinn sem lét kýrnar verða eftir í skóginum, til að hann fengi tækifæri til að sýna mér, hvernig hann vill og getur hjálpað í öllum kringumstæðum, og trú mín fengi að þroskast í gegnum þetta. Ég var sem sé ný endurfæddur þá. Viktor Hedlund.

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.