Barnablaðið - 01.09.1975, Page 17

Barnablaðið - 01.09.1975, Page 17
FÓRNFÚS KÆRLEIKUR Börnin mín góð! Ég ætla að segja vkkur ofurlitla sögu um hana frænku mína, sem mér þótti svo vænt um. Þegar ég var barn, þá var hún oft tíma og tíma á æskuheimili mínu, til að hjálpa til við heimilisstörfin. Hún var þá ung stúlka og var fyrirmynd annarra í fórnfýsi og gæðum. Af ein- hverjum ástæðum sem ég veit ekki um, vildi það svo til að ég varð uppáhald hennar og eftirlæti, kannski af því að ég var þá yngst. Svo var það eitt haustið, að hana langaði fjarska mikið að gefa mér einhverja jólagjöf. Þá var ekki um annað að ræða, en sauma ein- hverja flík eðá búa eitthvað til. En það var bara ekki svo auðvelt, þar sem húsakvnni voru lítil og herbergi fá. En auðvitað var þetta leyndarmál, sem enginn mátti vita, en sigur- sadl er góður vilji. Og hugmvndin kom! Fvrir ofan æskuheimili mitt er brött fjalls- hlíð. með klettabelti upp við brúnir, sem mest líkist fallegum kandísmolum. En einn kletturinn var stærri en hiqir, slútti hann svolítið fram, en var sléttur að ofan. Þarna sá hún fyrir sér ljómandi saumaborð. Og ekki var hikað eða fengizt um þótt brött væri brekkan og mörg voru sporin og kalt þar uppi. Hún hefði víst viljað fórna meiru en þessu fyrir mig. — Litlu frænku sína. Á jólunum fékk ég ljómandi fallegan nátt- jakka, sem var sniðinn uppi á fjalli. Og ennþá man ég hvað ég varð glöð og undrandi, þótt ung væri. En ekki skildi ég þá hvað þetta hafði kostað hana mikla fyrirhöfn. Mér fannst hún vera bezt af öllum frænkum. Núna skil ég betur bæði þetta og margt fleira, sem hún gerði fyrir mig. Þess vegna skrifa ég niður þessar gömlu minningar, til að heiðra minningu hennar. Kannski væri eitt- hvað hægt að læra af þessu. Mörg ár eru síðan hún fór heim til frelsara síns, sem hún trúði á og reyndi að líkjast.--------- Getur þessi litla saga, þótt stutt sé, ekki minnt okkur á annan og meiri kærleika og stærri fórn, og það sem Jesús hefur gert fyrir okkur, þegar hann gekk veg þjáninganna upp á Golgatahæð, til að kaupa.handa okkur rétt- lætisskrúðann, sem við syngjum um í sunnu- dagaskólanum: ,,Á himnum hjá Jesú mun ég hvít klæði fá, kórónu á höfuð, ó, hve dýrðlegt að vita að á himnum hjá Jesú mun ég fagnandi sjá pálmana sveipast og á gullhörpur slá.“ Kristín Jónsdóttir. REGLUBUNDNAR SAMKOMUR. Fíladelfía í Reykjavík hefur reglubundnar samkomur þessa daga: Sunnudaga kl. 8.00, þriðjudaga kl. 8.30, fimmtudaga kl. 8.30, laug- ardaga bænasamkomur kl. 8.30. — Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomur þessar. 17

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.