Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1886, Page 6

Sameiningin - 01.07.1886, Page 6
—70— koma því, sem ársfundr hefir ályktaS, inn í meðvitund almenn- ings í sínum eigin söfnuðum. Ársfundrinn á að vera máttar- taug sameiningarinnar hið ytra; en þessi þáttr er sundr skorinn og sundrung komið á í stað sameiningar, ef ályktanir ársfund- >. arins eru að vettugi virtar af þeim, er þær eru gjöröar af eða gjörðar fyrir. þá er það, sem hér er ritað, lcemr fyrir almennings sjónir, verðr að vonum hinn 2. ársfundr kirkjufélags vors um garð genginn. Starf hans verðr ekki vegið fyrir fram. En svo mik- ið iná segja, að það á að verða til þess að styðja kirkju vora og kristindóm og þar af leiðanda til stuðnings því að vér Is- lendingar, þótt vér séum hér í líkamlegri dreifing, getum á and- legan hátt verið hver öðrum sameinaðir. En það er undir ein- staklingunum í söfnuðunum komið, hvort það, sem á ársfundi er unnið til þess að styðja kristilega sameining manna, verðr til sameiningar eða ekki. það verðr til sameiningar, þótt sjálfsagt verði ófullkomið, ef almenningr lætr þessi bcenarorð Jesú Krists bergmála í hjarta sínu : „Svo að allir sé eitt“. Á vorum dögum eru margir menn, sem eiga örðugt með að koma sál sinni til að biðja. Hjá vorri þjóð er bœnin ekki ein- ungis hortín úr heimilislífinu, heldr og úr hinu daglega lífi fjölda- margra einstaklinga. Orðugleikinn liggr í trúarskorti, og trúar- skortrinn stendr aftr í sambandi við gjörvallan hugsunarhátt þessa tíma. Á fyrri dögum var hlaupið yfir þær orsakir hlutanna, er næst liggja, og tafarlaust leitað til guðdómsins sem þess, er bein- línis væri orsök allra atburða. Á vorum dögum er mönnum gjarnt, að líta ekki lengra en til orsakanna, sem næst liggja, með því að mannleg eftirgrennsian og skarpskyggni kemst þar lang-helzt að, en þar á móti hættir mönnum við, að gleyma hinni upphaflegu orsök allra hluta, hinum eina sanna og lifanda guði. Yér skulum ímynda oss, að einhvers staðar sé verið að koma upp húsbygging nokkurri, og maðr einn komi þar að og taki til að rannsaka ofr grandgæfilega og vísindalega uppruna þessarar bygg- ingar. Hann getr bent á staðinn, þar sem leirinn hefir verið grafinn úr jörðinni, hnoðaðr, brenndr. þar næst sér hann, hvernig miirstein- arnir, sem þannig eru til orðnir, hafa verið fluttir burt þangað sem húsið skyldi standa á hestavögnum, járnbraut, skipum, eða öllu þessu. Hann getr bent á staðinn, þar sem kalkið hefir verið

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.