Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1887, Blaðsíða 2

Sameiningin - 01.01.1887, Blaðsíða 2
—162 spurning : „Ert þú Gyðinga-konungrinn ? “ Gyðingar látast vera komnir með Jesúm til Pílatusar af einskærri föðurlandsást, af um- hyggju fyrir að opinber friðr fái haldizt í landinu, af löghlýðni við hina rómversku yfirstjórn landsins. ])að eru menn, sem kunna sína pólitisku lexíu, þessir Gyðingar. þeir eru ekki að vinna fyrir sig. þeir eru að vinna fyrir þjóðina, ríkið, stjórn- ina. það er almennings heill, ríkisins heill, blessan lands og lýðs, sem þeirn liggr eingöngu á hjarta. þess vegna eru þeir komnir með Jesúm bundinnfram fyrir Pílatus.—þaS eru pólitisk- ir tíinar nú hér hjá oss. þaS er nú í þessum bœ og þessu fylki og jafnvel í öllu þessu ríki spurt að því meðal almennings, eflaust fremr en eftir nokkru öðru, hverjum pólitiskum flokki hver ein- stakr atkvæSisbær maðr vilji fylgja, hverjar pólitiskar skoSan- ir menn vilji styðja, hverja menn vilji láta hafa völdin eða stjórnartaumana framvegis. því að bráSum eiga kosningar aS fara hér fram og svo á upp úr því aS byrja nýtt pólitiskt ár fyrir þjóSinni. Allir þeir, sem atkvæði mega greiSa og ætla sér að greiSa, verSa nú aS flýta sér aS gjöra sér grein fyrir því, hverj- um þeir eiga aS gefa atkvæSi, hverja þeir eiga aS styrkja til valda En vér stöndum líka við önnur áramót, hvort sem allir hafa tekið eftir því ellegar ekki. þaS byrjar nýtt kirkjuár í dag, eftir því sem menn um margar aldir hafa verið vanir aS telja tímann í kirkju vorri. Og er þá ekki rétt og eSiilegt, aS menn spyrji að því í dag, hver hér eigi aS ráða yfir mönnum í andlegu tilliti á ókomnum tíma. þaS er á valdi almennings, hjá hverjum völdin verða hér framvegis í borgaralegu tilliti— segja rnenn. En það er engan veginn að öllu leyti satt, svo lengi sem ekki bæSi konur og karlar, fátœklingar og ríkismenn hafa pólitiskan atkvæSisrétt. En hinu ræðr almenningr í orðs- ins eiginlegustu merking, hjá hverjum hin andlegu völd verða hér á ókominni tíð. MeS tilliti til þess, hvaS hér verðr ofan á í andlegum efnum, þá hafa allir óskertan atkvæðisrétt, jafnt konur sem karlar, jafnt blásnauðir menn eins og þeir, sem vel er.u efnaSir, jafnt ungir menn sem gamlir. Hið andlega lög- gjafarvald, hiS andlega framkvæmdarvald, hiS andlega dómsvald —þaS er allt í höndum alinennings.—Pílatus spurSi Jesúm, livort hann væri GySinga-konungrinn. Og eins mætti þá spyrja aS því nú: „Er Jesús vor konungr ? “ Enginn ber á móti því meS- al fólks, er telr sig kristið, meSal safnaSar, sem heldr fram trúarjátning kristindómsins. MeS því aS kalla sig kristna hafa

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.