Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1887, Page 5

Sameiningin - 01.01.1887, Page 5
—165— mn ganga í himnaríki, heldr þeir einir, sem gjöra vilja míns himneska íoður“. Og enn fremr segir hann : „Sá, sem heyrir þessa mína kenning og breytir eftir henni, honum vil eg líkja við forsjálan rnann, sem byggði hús sitt á bjargi..þar á móti er sá, sem heyrir þessa mína kenning og breytir ekki eftir henni, líkr heimskum manni, er byggði hús sitt á sandi“. Svo maðr getr þá eftir þessu verið á þeim vegi, sem til glötunar iiggr, þó að maðr heyri guðs orð, hrópi: herra, herra, beri krist- ið nafn, standi í kristnum söfnuði, játi Krist í orði kveðnu sem konung sinn. Kristið nafn hjálpar engum; kristið hjarta og kristið líf er það, sem allt er undir komið. Hvorn hinna tveggja llokka í þínu mannfélagi, þann, sem er með Kristi, lifir í trúnni á hann, íylgir fram hans lífsreglum, eða þann, sem ekki er með honum og þess vegna á móti honum, hvorn þess- ar tveggja flokka hefir þú stutt á liðinni tíð ? Eg nefni tvo flokka í kristninni eins og vér tölum um tvo pólitiska flokka. En vel veit eg það, að enginn af oss getr sagt eða hefir rétt til að segja, hverjir í þessum flokknum sé og hverjir í hinum. Drottinn einn þekkir sína. Og þess vegna væri, ef til vill, rétt- ara að tala að eins um tvær ólíkar og í rauninni alveg gagn- stœðar stefnur, sem í andlegu tilliti ráða meðal kristins almenn- ings. ])ú hefir, ef til vill, ekki hugsað um neina vissa stefnu í andlegu tilliti, en að eins liugsað um að fylgja þeim og þeim nianni, sem þér þótti að einhverju leyti mikið til koma, gang- andi út frá því, að þér væri óhætt að vera þar sem hann var. Svona hugsa margir og svona breyta margir í pólitisku tilliti. þeir eru ekki að hugsa urn málefni, heldr um menn. En þetta er nú einmitt rotnunin og dauðinn í hinu pólitiska lífi. Og ef slíkt er eitr þar, þá er það eigi síðr eitr fyrir kristindómslífið. Hugsaðu, maðr, ávallt urn sannleikann. Ef þú ert með sann- leikanum, þá ert þú með Kristi. Konungr kristninnar er kon- ungr í sannleikans ríki. þú átt eins og hann að bera sannleik- anum vitni. Lifðu fyrir sannleikann, og deyðu fyrir hann líka, ef á þarf að halda og drottinn vill. Og fljóttu þá aldrei í kjöl- fari annarra manna, án þess þú vifirpneð vissu, að þeirra stefna er sannleikrinn. En sleppuin því nú alveg, hvernig hver einstakr í andlegu tilliti eða kristindóminum viðvíkjandi hefir greitt atkvæði á lið- inni tíð. Látum menn hafa greitt atkvæði í hjörtum sínutn og með lífi sínu gegn því að Kristr hefði hjá oss yfirráðin. Lát-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.