Sameiningin - 10.04.1888, Síða 11
—43-
sál, eigi síSr en það var knnnugt Gyðingum í Rómaborg,
sem Páll postuli átti tal viö. Vér verðum sem lcristnir
menn aö þola mótmælin, hvaöan sem þau koma, því vér
trúum á þann, sem mótmælin, illmælin, þoldi. En hann
þoröi líka að mótmæla ranglæti og hrœsni, kærleiksleysi og
vantrú heimsins. Ef vor kirkja hnígr til jarðar fyrir mót-
mælum þeirra, sem elska það, er Jesús hatar, þá er hún
ekki verö að bera kristiö nafn. Og ef þeir, sem kirkju
vorri til heyra, standa í söfnuðum vorum, þora ekki að mót-
mæla því, sem Jesús Kristr mótmælir, þora ekki að
vera það tákn, sem móti verðr mælt, þá hlýtr allr krist-
indómr meðal fólks vors að falla niðr.
En gætum aö mótmælum vorum, og gætum að mót-
mælum þeim, er vér fáum, því vér erum allir syndarar, allir
ákaflega breyskir og brotlegir menn. Látuin anda Jesú
Krists, sannleiksandann, kærleiksandann, anda sannkristi-
legrar trúar, stýra, öllum vorum mótmælum, til þess að það
sýni sig, að það er syndin, sem vér hötum og spyrnum á
nióti, en elskum syndarann, elskum alla menn. Og þegar
kirkju vorri er mótmælt, þegar að því er fundið, sem vér
gjörum í jiafni kirkjunnar og drottins, þegar vér erum vægð-
arlaust dœmdir fyrir alla vora framkomu, þá látum það
kenna oss að rannsaka galla vora, misgjörðir vorar og van-
gjörðir, til að lýsa með loganda ljósi guðs orðs inn í hvern
afkima hjartna vorra. Og hversu ranglátum dómum, sem
vér kunnum að vera dœmdir, munum vér samt þá glöggt
geta séð, að margs er að iðrast, yíirfljótánleg ástœða til
að biöja til drottins: „Yertu mér syndugum líknsamr".
BŒNARSÁLMR
eftir B. S.
út af orSunum: „Vertu hjá oss, j)v{ að kvölda tekr og á daginn Hðr“
(Lúk. 24, 29).
Lag S œ t i J e sú, sj á o s s h é r.
Vertu hjá mér, herra minn,
húmið nú á jörðu skyggir;
varnaiiausra vinrinn,