Sameiningin - 10.04.1888, Síða 16
—48—
f>að er á kveðið og auglýsist almenningi í söfnuðum kirlcjufélags vors, að
kirkjujiing vort fyrir yfir standanda ár, eða 4. ársfundr félagsins, er halda á á
Mountain innan Víkrsafnaðar, verðr, ef guð lofar, byrjaðr með opinberri guðs-
jjónustu föstudaginn 22. Júní tveim kluklcustundum fyrir hádegi.
AUir söfnuðir, sem í kirkjufélaginu standa, niuni eptir ]>vi, að senda
á kirkjuþingið fulltrúa einn eða fleiri samkvæmt tölu fermdra safnaðarlima
eftir Jrví sem fyrir er mælt í grundvallarlögum félagsins, og verða söfnuðirnir
að gefa þeim, er þeir senda, greinileg skilríki í hendr um að þeir sé rétt og
formlega kosnir, til þess að þeir geti, þá er til ]>ings kemr, sannað rétt sinn
til þingsetu. Til þess að þessi skilríki sé fullkomin þurfa þeim að fylgja vott-
orð, nema áðr sé komin til félagsförseta, um það, hve margir fermdir (og þá
líka ófermdir) safnaðarlimir voru í hverjum einstökum söfnuði á þeim tíma,
þá er kosr.ingar fulltrúa til kirkjuþingsins fóru fram.
Ætlazt er og til, að áðr en kirkjuþing byrjar verði úr öllum söfnuðum
félagsins til samans að minnsta kosti greitt í félagssjóð til féhirðis kirkjufélags-
ins 60 dollara upphæð fyrir þetta félagsár. Með j>ví að deila þeirri upphæð
með safnaðarlimatölu hvers einstaks safnaðar eins og hún var í fyrra (sjá
gjörðabók fyrir síðasta kirkjuþing í ,,Sam.“ II, o—6) má sjá, hve mikið
hinir einstöku sofnuðir ætti að réttu lagi allra minnst til að leggja.
Winnipeg, í Maí 1888.
Jón Bjarnason,
forseti.
ítS’ Um leið og einhver kaupandi blaðs þessa skiftir um bústað, þá gjöri
hann svo vel, að senda útgáfunefndinni línu um hina breyttu utanáskrift til
hans, svo blað hans verði sent þangað sem það á að fara.
Iif einhver kaupandi ,, Sam. “ í Winnipeg eða annars staðar, sem á að fá blað
sitt beinlínis frá útgáfunefndinni, fær ekki blað sitt, þá gjöri hann svo vel, að
láta einhvern nefndarmanna vita það sem fyrst. En þeir, sem blöð sín eiga að
fá frá einhverjum umboðsmanni vorum í hinum íslenzku byggðarlögum nyrðra
eða syðra, snúi sér í þessu efni til hans, sem svo lætr oss aftr brátt vita, ef
eitthvað er vansent eða missent, og verðr þá hið fyrsta úr því bcett af oss.
„SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega, 12 nr. á ári. Verð í Vestrheimi
$1.00 árg.; greiðist fyrir fram. —Skrifstofa blaðsins: 190 Jemima Str., Winnipeg,
Manitoba, Canada. —Útgáfunefnd: Jón Bjarnason (ritstj.), Páll S. Bardal (féhirðir),
Magnús Pálsson, Friðrik J. Bergmann, Sigurðr J. Jóhannesson.
I’rentsmidja Lögbergs, Winnipeg.