Sameiningin - 01.09.1888, Page 7
—111—
sem liggja fyrir utan kristindóminn. Illr lestr gjörir allt,
sem lesiö er, undantekningarlaust að dauöum Lókstaf.
Hvað ];að er að lesa iJla í þeim skilningi, sem vér
erum nú að eiga við, er örðugt að útskýra skriflega
einkanlega fyrir þeim, sem ekki enn heíir lærzt sú íþrótt
að lesa vel. Og það eru þó einmitt þeir, sem á slíkri út-
skýring þyrfti að halda. Greinarmunr á góðum og illuin
lestri þarf auðvitað að kennast m u n n 1 e g a. ]).aö er að sinu
Jeyti eins og- þegar verið er að kenna manni söng. Undir-
staðan undir þeirri kennslu verðr að vera heyranleg, verk-
leg. það er ekki til neins að leggja skriíiegar upplýsing-
ar fram um það, hvernig eigi að syngja, fyrir ]iann, sem
eklci gctr gjört neinn greinarmun á lireinum og óhreinum
tónum. Og sama gildir um lestr. þó skulum vér nefna
nokkur einkénni á illum lestri. þegar lesið er allt öðru vísi
en talað er, þá er illa, ónáttúxdega lesið. þegar sá, sem
les, undir eins og hann fer að lesa (og hér erum vér
náttúrlega að tala um að lesa upp hátt) breytir allt í einu
sínum vanalega og honum eðlilega rómi, og les svo xneð
einhverju annarlegu lagi, þá er ólag á, þá er illa lesið.
þegar lestrinn vantar allar réttar og cðlilegar áherzlur og
málhvíldir, þegar allt er lesið, eins og menn stundum segja,
„í belg og biðu“, þegar menn draga seim í lestrinum, lesa
höktandi og hálfsyngjandi, þá er illa lesið. Allir kækir
eyðileggja lestrinn. það, sem lesið er á einhvern slílcan
ónáttúilegan hátt, missir fyrir þeirn, sem það les eða sem
það er lesið fyrir, alla þá hugsan, allt það vit, er það ann-
ai'S hefir meðferðis. ])að verðr halarófa af meiningarlausum
orðurn, óskiljanleg samtvinna af hljóðum, næi'ri því eins og
kiílfi væri laxnið í klukku í sífeliu. En svona er fjölda ís-
lenzkra barna kennt að lesa. Og af því að ];eim er svona
kennt að lesa, þá verðr mikið af því, sem unglingarnir
lesa, þeim til einskis gagns. þcir vita margoft ekki neitt
um það, hvað þeir eru að lesa. Og þó að þeir þannig lesi
það svo oft, að þeir læii það utan að, ]>á skilja þeir það,
sem svona er utan að lært, eins lítið íyrir það. það, að
menn, eftir að iiafa lært utan að eins löng frœða-ágrip
eins og íslenzku barnalærdómskverin eru, ekki liafa meiri