Sameiningin - 01.03.1890, Qupperneq 5
Mánaðarrit til stuð'nings kirkju og kristindómi íslendinga,
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi.
RITSTJÓRI JÓN BJARNASON.
5. árg. WINNIPEG, MARZ 1890. Nr. 1.
Islanis-ftrí).
Eftir Jón Bjamason.
II.
það var einn bjartan og blíðan sunnudagsmorgun, hinn
13. Október, aS viS lentum aftr í Reykjavík eftir ferðina
til norðaustrlandsins. Tíðin hafði allt af veriö hin þægileg-
asta þar á suðrlandinu rneSan stóS á öllum þessum illviSr-
um í þingeyjarsýslu, svo þaS var nú einsog maSr væri
kominn úr kuldabeltinu inn í milda beltið. Og þessi mikli
munr á tíðarfari nyrSra og sySra á Islandi er mjög vana-
legr. Fóiki á suSrlandi er ])etta ekki vel Ijóst, Reykvík-
ingum aS minnsta kosti ekki, og svo hættir þeim við aS
dœma um þá baráttu, sem almenningr á í við náttúruna
í ])essum hörSustu héruSum landsins, meS of lítilli nær-
gætni. Eg lieyrSi oss Islendingum hér vestan hafs vera
boriS þaS á brýn af sumum merkum mönnum þar heima,
aS vér værum ekki Islandi og hag fólks þar nógu kunn-
ugir, vér værum búnir aS gleyma svo mörgu í vorum fyr-
verandi heimkynnum af burtuverunni, og þessvegna dœmdum
vér einatt hraparlega skakkt um land og lýS. þaS er
vafalaust talsvert brot af sannleika í þessum áburði. Yér
erum sjáifsagt sama lögmáli undirorpnir einsog landar vorir
i