Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1890, Síða 7

Sameiningin - 01.03.1890, Síða 7
—3— Eg neita því ekki, að eg varS feginn þennan inndæla sunnudagsmoi-gun, eftir allt guðsþj ónustulcysiö á ferðinni um norSaustrlandið, að koma í kirkjuna í Reykjavík og taka þar þátt í kristinni tíðagjörð. Guðspjallið um lækn- ing hins vatnssjúka manns á sabbatsdegi og það, sem Jes- ús talaöi út af því miskunnarverki um hið rétta sabbats- hald, bar líka upp á þennan sunnudag, hinn 17. eftir tríni- tatis, svo að et'nið, sem prédikað var út af þar í kirkj-. unni í þetta skiftið, átti mjög vel við tilíinningar mínar og hugsanir. Og þó að eitthvaö hefði kunnað að vanta á, að guðsþjónustugjöröin sjálf lyfti þeim, sem í henni tóku þátt, upp í verulega háleitar sabbatshugsanir, þá voru menn að minnsta kosti fyrir einstaklegt atvik alvarlega minntir á það, meðan í þetta skifti var dvalið í drottins húsi, hve mikla þörf þetta veika mannshjarta hefir á sabbatsfriði frelsarans í byltingum lífsins og umbrotum dauðans. Sterkr jarðskjálftakippr kom rétt áðr en prestrinn hóf prédikan sína og hristi steinkirkju þessa, svo hún riðaði og nötraði. Fólk flest rakst ósjálfrátt í einni svipan upp úr sætum sínum, þyrptist fram á gang, og sumir flúðu alveg út úr kirkjunni og komu ekki aftr. Smákippi einn eða tvo þótt- ust sumir finna skömmu síðar. Snemma um morguninn áðr, meðan skip vort var statt úti af Reykjanesi, höfðu menn í Reykjavík fundið fyrsta jarðskjálftann, en hann hafði ekki verið nærri því eins sterkr einsog þessi, sem kom meðan vér voruin í kirkjunni. þegar drottinn talar á þennan voðalega háttj til mannanna gegnum sín sterku náttúruöfl, þá flnnst mér kristindómsorðið fái ógleymanlega áherzlu. Nokkuð var það, að þetta orð fékk svo sterka áherzlu forðum, þegar þeir Páll og Sílas sátu í myrkva- stofunni í Filippí og jarðslqálftinn mikli kom, að fanga- vörðrinn vaknaði andlega og tók til að spyrja: „Hvað á eg að gjöra, svo eg verði hólpinn ?“ það minnir mig, þetta atvik, á hinn dýrðlega passíusálm í hinni nýju sálmabók vorri eftir séra Valdemar Briem, þar sein þetta stendr í: „sjá, öll skelfr jörðin og nötrar; þá hrökkva sem hörkveikr sundr þeir hörðustu, stcrkustu fjötrax%“ r'

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.