Sameiningin - 01.03.1890, Blaðsíða 12
prestanna íslenzku hafa lent lengra eða skemmra' inn á
Únítara-stefnuna. Rödd hins ónefnda unga prests, sem í
haust meðan eg dvaldi í Reykjavík var að láta til sín
heyra í „Fjallkonunni“ um „hrákasmíði Lúters", var auð-
heyrt inni á þeirri stefnu, þó sá hinn sami maðr að öll-
um líkindum ekki hafi áræði til að fara lengra út í þá
sálma opinberlega eftir að hann hefir fengið svo hœfilega
og alvarlega ofanígjöf einsog þá, er séra Benedikt á Grenj-
aðarstað hefir gefið honum nokkru seinna í sama blaðinu.
Merkilegt þótti mér líka að taka eftir því, að Únítara-
hlaðið Tlie Ghristian Life var nærri því eina enska tíma-
ritið, sem fyrir mig har í Reykjavík, og alveg vafalaust hið
eina af enskurn tímaritum, sem aðallega eru trúarlegs efnis.
Og mér skildist, að ekki svo fáir menn af yngri kynslóð-
inni læsi það talsvert. það, að hugir eigi svo fárra hafa
hnegzt í þessa áttina er eg santifœrðr um að er, að minnsta
kosti rneðfram, afleiðing þessa galla á prédikunum hinna leið-
andi manna meðal kennilýösins, sem í því er fólginn, að
draga svo lítið fram liina mannlegu hlið á kristindóminum.
Realismusinn liggr í loftinu hrærvetna um liinn menntaða
heim á vorum mannsaldri, einnig á hiuu afskekkta Islandi
nú orðið. Og það, að þeir, sem kristindómsboðskapinn hafa
flutt þjóðinni, hafa í þessari grein ekki fullnœgt kröfum
tímans, hlaut að hafa þá skaðlegu afleiðing, sem eg nú
hefi bent á. þetta þyrfti hinir fremstu guðfrœðingar Is-
lands, biskap, dómkirkjuprestrinn, prestaskólakennararnir og
aðrir, sem allra fyrst að sjá, til þess þeir gæti leitt presta-
lýðinn almennt inn á þá stefnu í prédikunaraðferðinni, sem
allir ágætustu prédikarar nútíðar-kristninnar, í lútersku
kirkjunni eigi síðr en í öðrum kirkjudeildum, eru inni á.
0g „Fjallkonan“ myndi svo ekki lengi getað hrósað happi
ytir því, að hugr svo og svo margra af prestunum væri
að halla sér í sömu vantrúaráttina og hún sjálf. Ekki
heldr myndi hún þá áræða að stinga öðru eins axarskafti
út í almenning og því, er hún segir að það sé vafasamt,
hvort Lúter verði réttilega talinn rneðal mestu manna
heimsins. það áræðir enginn xnaðr með viti, hversu illt
sem í honum er við kristindóminn, að slengja þessu út