Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1890, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.03.1890, Blaðsíða 13
—9 í lúterskan almenning þess lands, þar sem realismus Lút- ers gamla er á lííi í kirkjunni. EFTIRMÁLI YIÐ RITGJÖRÐ CJIR BRUUNS UM MESSÍASAR-VONUSTA. Eftir höfundinn. Ef vér lítum til baka yfir Messíasar-vonina einsog vér höfum sýnt hana þroskazt í Israel, þá sjáum vér, að þaS er reglulegt samanhengi í þeim þroska, frá því er hið einfalda „frumevangelíum'1 er boðað við hlið paradísar og þangað til spámennirnir fá sínar dýrðlegustu vitranir. Hvergi er stokkið yfir miliiliðina. Eitt stig tekr við af öðru al- veg eins eðlilega og sennilega einsog höft í stiga eða öllu heldr einsog greinar á jurt. það er að vissu leyti algjörlega rétt, að frumevangelíið um það, að sæði kon- unnar skuli sundr mola höfuð höggormsins, hetír í sér fólg- inn allan hinn eftirfaranda mikla þroska Messíasar-hugsun- arinnar. það felr hann í sér á sama hátt eins og hið tignarlega tré í skóginum liggr fólgið í hinu litla frœkorni, er út af því á að spretta. þegar eg var lítill, ímyndaði eg mér út af einhverju, sem eg hafði heyrt, að með vel góðu stœkkunargleri mætti í eplakjarna sj i allt eplatréð, er upp af því ætti að springa, í heilu lagi, ineð rót, grein- um og öngum. það er viðlíka misskilningr, og hann engu minni, þegar menn ímynda sér, að með duglegri og ná- kvæmri skýring á oröunum um sæði konurmar megi sýna allt það, sem vér vitum um Krist, um holdtekju drottins og hinn friðþægjanda dauða hans o. s. frv. Allt það, er nú á tímum má biblíuþ'ýð'ing nefna, verðr einmitt að byrja með því að útibyrgja allar slíkar grillur og halda sér við það, sem í raun og veru stendr skrifað. Annars verðr það aðeins til þess að menn leggja inn í biblíuna allar sínar eigin „uppbyggilegu" hugsanir. Og þá læra rnenn auð- vitað eklci meira af því að lesa hana en það, sem menn vissu áðr. En einmitt með því að halda sér vandlega víð það, er

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.