Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1890, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.03.1890, Qupperneq 16
—12— FariS því og kennið öllum þjóðum og skírið þær í nafni föður, sonar og heilags anda; og kennið þeim að halda allt það, sem eg hefi boðið yðr. Og sjá, eg er með yðr alla daga allfc til veraldarinnar enda. (Matt. 28, 18—20). Og er hann var uppstiginn hátt upp yfir alla himna, svo að hann uppfyllti allt, gjörði hann suma að postulum, suma að spámönnum, suma að guðspjailamönnum, suma að hirðum og lærifeðrum, svo hinir heilögu yrði hœfilegir til framkvæmdarsamrar þjónustu Krists líkama til uppbygging- ar. (Efes. 4, 10.). þannig stofnaði drottinn sjálfr embætti til þess að hoða friðþæginguna, embætti andans til réttlætingar, endrnýung- ar og sáluhjálpar. Eigi svo að skilja, að þeir, sem þjóna þessu embætti hins nýja sáttmála, só af eigin kröftum hœfir til þess að hafa það á hendi, heldr þannig, að guð gjörir þá til þess hœfa. þeir eru sendiboðar Krists, þannig að guð lætr þá fiytja áskoran sína fram fyrir mennina. Og af guði hafa þeir þegið þjónustu yfirgnæfandi dýrðar. 1 öllum hlutum eiga þeir því að prýða embættisþjón- ustu sína, svo sem Páll postuli ritar í bréfinu til Títusar: því biskup á að vera ólastandi, einsog guðs ráðsmaðr, ekki sjálfbyrgingur, ekki reiðigjarn, ekki drykkjumaðr, eigi ofstopamaðr, né sólginn í svívirðilegan ávinning; heldr gest- risinn, gott elskandi, ráðsvinnr, réttvís, lieilagr, bindind- issamr, sem er fastheldinn við hinn áreiðanlega lærdóm, einsog hann hefir kenndr verið, svo að hann bæði só fœr um að frœða í hinum heilsusamlega lærdómi og að hrekja þá, sem móti mæla. Af þessu lærið þér, hve göfugt og mikilvægt embætti það er, sem þér eruð kallaðr til, og að það er licilagr sannleiki', sem postulinn segir: „Ef einhver girnist biskups- embætti, þá girnist hann ágætt verk‘\ Með því nú embætti yðar og ætlunarverk þannig er svo örðugt og þér megnið eigi af eigin krafti að fullnœgja því svo, að guði megi vel þóknast og orðið geti kirkjunni til uppbyggingar, þá áminnum vér yðr að treysta almáttugri náð drottins vors Jesú Krists og að hugga yðr við hans hjástoð. þeir, sem vona á drottin, fá nýjan kraft. 0g hann, sem hefir lofað

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.