Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1890, Qupperneq 19

Sameiningin - 01.03.1890, Qupperneq 19
N. N., sem kallað’r er til þíns embættis, heilagan anda þinn, svo að hann, sem settr er til að prédika þitt orð , tai reynzt trúr verkamaðr þinn og staSið stöðugr gegn öllum freistingum heimsins, holdsins og djöfulsins, að þitt nafn megi fyrir hans starf helgast, þi.tt ríki útbreiðast og þinn vilji verða svo á jörðu sem á himni. Virzt þú að hindra alla ó- vini þína, sem lasta nafn þitt og berjast gegn ríki þínu, og gjöra aö engu allar árásir þeirra. Og hvar sem þjónar þínir prédika og vinna, þá blessa prédikan þeirra og farsæl verk handa og hjartna þeirra, þínu háheilaga nafni til lofs og dýrð- ar og sálum mannanna til frelsis, fyrir þinn elskulegan son, drottin vorn Jesúm Krist, sem með þér og heilögum anda liíir og ríkir einn sannr guð frá eilífð til eilífðar. Söfnuð'rinn segir: Amen. (Hinn nývígði prestr stendrupp.) Farið þá og fœðið söfnuð drottins, sem þér eruð kallaör til, og veitið honum umsjá, eklci með nauðung, heldr fúsu geði, ekki fyrir auðvirðilegs ávinnings sakir, heldr af andans hvöt, ekki til þess að drottna yfir arfleifð guðs, heldr til þess að vera söfnuðinum til fyrirmyndar. Og þegar yfirhirðirinn birtist, skuluð þér meðtaka hina óvisnanlegu kórónu dýrðar- innar. Drottinn blessi yðr af hæðum og láti yðr verða mörg- um til blessunar, svo að þér fáið borið mikinn ávöxt og að sá ávöxtr geymist yðr til eilífs lífs. Hinn nývigði prestr segir: Ainen. (Prestarnir rétta hinum nývígSa embættisbróður hœgri hönd sína. --------------------------------------- ÆFISAGA. Eg, Hafsteinn rétisson, er fœddr 4. dag Nóvemberm. 1858. Faðir minn var Pétr Frímann Jónsson, bóndi á Geithömrum í Svínadal í Húnavatnssýslu, cn kona hans og móðir mín hét Ingibjörg og var Hafsteinsdóttir. — Haf- steins-nafnið er alíslenzkt og gamalt nafn. — Um vorið 1859 fluttu íoreldrar mínir að Grund í Svínadal. {>ar ólst eg upp. Vorið 1873 fór eg vistferlum til héraðslæknis J. Skaftasens á Ilnausum í p>ingi. Eg var apótekara-sveinn hjá honum í 2 ár. Plann dó vorið 1875. Næsta vetr lærði eg undir skóla hjá séra Páli Sigurðssyni, er J>á var prestr á Hjaltabakka. Vorið eftir 1876 tók eg inntökupróf í lærða skólann í Reykjavík og settist i 1. bekk. Burtfararpróf úr skólanum tók eg sumarið 1882 með 1. einkum. Sama sum- ar sigldi eg á háskólann í Kaupmannahöfn. Jón prófastr J>órðarson á Auð- kúlu og Sigurðr bóndi Hafsteinsson í Oxl styrktu mig bæði til skólanáms og til siglingar. Fyrst las cg reikningsfrœði við háskólann í 2 mánuði, en síð- an tók eg að lesa guðfroeði. Eg las svo guðfrœði við háskólann í úr, og tók þar próf í heimspeki, hebresku og kirkjufeðra-latmu. Árið 1885 var eg hinn einasti íslendingr, sem j;á las guðfrœði við háskólann. Eg ritaði ])að ár 2 stuttar greinar á dönsku um eina eða tvær af hinum nýjustu íslenzku guðfrœðisbókum. Onnur grcinin kom út í Fheologisk Tidsshift, en hin kom lit í Nationaltidende 20. dag Nóvemberm. 1885. Framtíð mín virtist lönd- um mínum í Kaupmannahöín næsta glœsileg. f>ví veitti og eftirtekt mér al-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.