Sameiningin - 01.05.1900, Blaðsíða 13
45
Tíminn var langt um of stuttr, og var því lítiö unnt að
gjöra. En vegna j?ess eg endilega þurfti að vera kominn til
þingvalla-nýlendu í Assiniboia fyrir lok Marzmánaðar var mér
ómögulegt að dvelja lengr í byggðum þessum.
Mjög lítil félagsleg starfsemi í kristilega átt hefir enn kom-
izt á í þessum byggðum, og er þó kominn fullkomlega tími til
þess, að eitthvað væri farið að vinna meðal fólksins og af fólk-
mu sjálfu. Frá því eg hafði komið í byggðina næst áðr sá eg
ujá sumum talsvert mikla framför í veraldlegum efnum; en í
kirkjulegu tilliti stendr allt í stað. Sumir að minnsta kosti
finna þó til þess, hvað þetta er leiðinlegt. Á leiðinni út í
byggðirnar hitti eg einn nýlendubúa, sem sagði mér, að þegar
hann hefði verið í Winnipeg, hefði hann ekki verið meiri
kirkjumaðr en svona fólk flest, en sér væri farið að leiðast
þetta prestleysis-líf þarna úti.
það er kominn tími til þess, að byggðirnar í kringum
Manitoba-vatnið fari að stofna söfnuði og í sameining kalla sér
prest. I kringum það vatn er nú orðið svo margt af Islend-
ingum í all-góðum efnum, að þeim væri ekki um megn að
halda lífinu í einum presti.
Við sunnudagsskólahald hefir í seinni tíð nokkuð ver-
ið átt í hvorritveggja byggðinni. I Álftavatns-nýlendunni
hefir það verið reynt síðastliðin tvö sumur, en það fyrirtœki
hefir ekki verið styrkt af sveitarmönnum eins og hefði átt að
vera. þeir Islendingar.sem búa austanmegin við Grunnavatn,
hafa og félagskap með sér í þá átt að halda uppi húslestrum
á sunnudögum. Er lesið hjá hinum ýmsu búendum til skiftis.
I sambandi við lestrinn er svo ætíð hafðr sunnudagsskóli. Og
er hvorttveggja þetta gott og þakkarvert. Um þennansunnu-
dagsskóla Grunnvetninga, sem kenndr er við Markland, póst-
afgreiðslustöð eina á austrströnd vatnsins, er skýrsla í Marz-
blaði , ,Kennarans“. Og sést þar, að á árinu, sem leið, hefir
skóla þessum verið haldið í gangi stöðugt frá því í Maí til
ársloka.
Ný Islendinga-bygffð'
og missíönarferð þangað. Eftir séra Jönas A. Sigurdsson.
Um ferð mína til íslendinga í grennd við Morden, Man.,
get eg í flýti sagt þetta;