Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1902, Side 5

Sameiningin - 01.05.1902, Side 5
37 þau kvöddust að skilnaði : , ,í guðs friði ! Innan skamms mœtumst vér aftr. “—,,Já, vér munum aftr sjást“ — heyröust önnur frœkorn segja, er þau hurfu undir moldar-ábreiöunni, sem ofan á þau var látin. Og sum bœttu við sigri hrósandi: ,,Og Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo skrýddr eins og vér munum verða í fylling tímans. “ Vantrúaðir vitringar, hálærðir heimspekingar, kaldlyndir kæruleysingjar, hin meiri háttar frœ og minni háttar frœin — allt hvarf á sínum tíma ofan í svarta, kalda jörðina. Dagarnirliðu, vetrardagar kaldra krapahríða.næðandi vinda og œðandi storma. Sólin kom aftr í Ijós með sí-vaxanda afli. Jörðin, sem lá í dvala, tók smásaman að vermast af sólar- geislunum. Enn sást þó ekkert merki þess, að breyting væri að verða, enginn vísir til lífs, engin upprisa eða hreyfing. Svo vantrúar-boðberarnir höfðu þá haft satt að mæla ! Því frœkornin öll höfðu greinilega horfið í moldinni, þar sem þau voru grafin. En eftir er að sjá, hvað fram kemr ,,í fylling tímans“ undir hinni bláu himinhvelfing í hinu tæra lofti og hinum milda vorblæ. Hvílík gleði og sæla þá ! Nýjar engilfagrar verur birtast þá. Skepnan endrfœdd. Hvílík opinberan ! Þarna sérðu frœkornin litlu dökku, lítilmótlegu, sem áðr voru. Hvílík ummyndan ! ,,Líttu á mig !“—segir fjólan í lágurrí róm við sóleygjuna. ,,Þekkirðu mig? Eg kannast vel við þig. Þú ert systkini mitt, sóleyg. Við erum enn þær sömu sem við vorum, og þó ekki eins og áðr. Gef mér morgunkoss upprisunnar ! “ Og hinir angandi blómstrbikarar þeirra beygðu sig hvor að öðrum. Eilífðarblóm ljómandi í fegrð morgunroðans, kattaraugu, rósir og liljur—öll þessi blóm eru þar, hvert um sig með sínum glitrandi sérkennum, vegsamleg' gjörð fyrir opinberan hins hulda lífskjarna, sem læknum hefir ekki tekizt að finna með líkskurðarhnífum sínum né náttúru- frœðingum með stœkkunargleruin sínum. Nætrgalinn syngr. Lœkjarbuldrið heyrist. Sólin glamp- ar á grœnu laufskrúði. Döggin dreifir út demantskenndum dropum yfir dúnmjúka gras-ábreiðu grundarinnar. Fiðrildin líða suðandi milli blómanna. Hvílíkr unaðr ! Hvílík dýrð !

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.