Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1902, Side 7

Sameiningin - 01.05.1902, Side 7
39 er sagnaritararnir hafa komizt að, vanalega trúanlega í einu og öllu. Vér trúum líka hver öörum. Dagsdaglega þurfum vér á því aö halda.- Vér byggjum daglega á orðum og sögusögn annarra manna, án þess vér höfum nokkuð annaö viö aö styöjast. Vér tfytjum úr einni heimsálfu í aðra—tökum oss upp úr einni sveit og flytjum í einhverja aðra, ef til vill í mörg hundruð mílna fjarlægð — og byggjum þá stórkostlegu ráða- breytni, er hrinda hlýtr örlögum lífs vors inn á öldungis nýjar brautir, á orðum og sögusögn annarra manna, er vér trúum. Það er víst með öllu óhætt að gjöra þá staðhœfing, að mennirnir byggi margfalt meira á því, er þeir á þennan hátt taka trúanlegt, en því, sem þeir hafa fengið áþreifanlegar sannanir fyrir með eigin eftirtekt og rannsók. Skilningarvitin eru ágæt og ómissandi, og það er um að gjöra fyrir hvern ein- stakan mann að komast upp á að nota þau sem bezt. En þegar allt kemr til alls, er það svo undr lítið svæði, sem þau ná út yfir, að vér komumst ekkert úr sporunum, ef vér ætlum ekki að trúa öðru en því, sem þau hafa fœrt oss heim sann- inn um. Vér verðum því eins og að skifta verkum með oss og láta þá, er lært hafa að beita skilningarvitum sínum vel, veita því svæði eftirtekt, sem þeir eru helzt heima á, og taka svo trúan- legt það, sem þeir segja oss og leitast við að koma oss í skiln- ing um. Sú tiltrú byggist á því áliti voru, að aðrir menn muni segja oss álíka rétt og samvizkusamlega frá því, er þeir veita eftirtekt, eins og vér segjum þeim rétt og samvizkusam- lega frá því, er fyrir augun ber. Jafnframt lítum vér svo á, sem þeir muni hafa álíka skilyrði til að dœma um þaö og vér. Þessi trú og tiltrú er stóra hjólið í öllu lífi mannanna hér í heimi. Á henni byggist allt félagslíf, öll viðskifti — allt það, er einn maðr á við annnan að sælda. Án hennar dytti allt mannfélagsskipulagið í mola og menning heimsins blési burt eins og hégómi. Af þessu er öllum ljóst, hve afar mikla þýðing þessi al- menna trú hefir. Án hennar fengi enginn lifað. Vér menn- irnir gjörum svo sem ekkert annað en að trúa frá morgni til

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.