Sameiningin - 01.10.1955, Side 3
Sameiningin__________________________________
A quarterly, in support of Church and Christianity amongst Icelanders.
PuMished hy
THE EVANGELICAL LUTHEEAN STNOD OF NORTH AMERICA
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa.
Editor: REVBREND BRAGI FRIÐRIKSSON
Box 118, Gimli, Manitoba, Canada
Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 69 5 Sargent Ave. Winnipeg 3, Man.
Alla daga náð er ný
Eftir GUÐRÚNU GUÐMUNDSDÖTTUR frá Melgerði
Sunnudagsins sólarglóð
signir geislum landið kæra.
Gef eg megi lofsöngs ljóð
lífsins Drottinn nú þér færa.
Þú sem alla annast hefur,
öllum líf og blessun gefur.
Mánudagsins birta brátt,
brottu nætur skugga hrekur,
syngjum lofsöngs hljóma hátt
himnesk náðin gleði vekur.
Drottins kærleiks geislar góðir,
gleðja allar heimsins þjóðir.
Þriðjudagsins ljúfa ljós
lýsir yfir vegferð manna
lifnar viðkvæm vonarrós,
vermist geislum lífið sanna.
Engum Drottins elska gleymir,
ávalt náð hans sérhvern geymir.