Sameiningin - 01.10.1955, Qupperneq 11
Sameiningin
33
Gáfu menn að lokum fé, sem skyldi senda heim. Lögðu þar
Vestur-ísiendingar sinn skerf fram í þessu mikla máli.
Auk nútíðarinnar og framtíðarinnar, sem mest var rætt
á þinginu, var horft til baka, og rifjað upp, það sem á dagana
hafði drifið. Var það skemmtilegt á að hlýða og fróðlegt
mjög. Framtíðin er enn sterkari söfnuðir og stofnun nýrra
safnaðar. Skýrði séra Eric H. Sigmar frá starfi sínu, sem er
fólgið í því að ganga hús úr húsi og ræða við fólk um
stofnun safnaðar. Hefur hann þegar á skömmum tíma heim-
sótt mörg hundruð heimili og safnaðarhugmyndin er komin
vel af stað.
Þegar hinn endurkjörni forseti, dr. Valdimar J. Eylands,
sleit þessu afmælisþingi, kvaddi hann fulltrúana og þakkaði
þeim vel unnin störf, sem nú væri þeirra sjálfra að sjá um,
að bæru raunverulegan árangur í hinum ýmsu söfnuðum.
Kirkjuþinginu var lokið, fulltrúarnir héldu hver heim til
sín, og ég var hrifinn.af þeirri mynd af kirkjulífi vestanhafs,
sem ég hafði nú kynnzt.
------------☆-------------
„Legg þú út á djúpið"
Prédikun rftir séra HARALD STEINGRIM SIGMAR
[Sá háttur hefur verið tekinn upp á Gimli að kveðja fiski-
mennina, sem á hverju vori fara til veiða á Winnipegvatni.
Fer þá fram Guðþ.iðnusta í kirkjunni á Gimii og' sú ræða, er hér
birtist, var flutt 29. maí s.l., en það var fjðrða vorið siðan slíkar
athafnir hðt'ust við brottför fiskimannanna. Messu þessari var
útvarpað. Fyrrverandi prestur Gimlisafnaðar, séra H. S. Sigmar,
mun hafa átt mestan þátt í því að koma þessum þætti kirkju-
starfsdns í framkvæmd og fer vel á því, að Sameiningin birti hér
prédikun hans, því að hún hefur að geyma tímabæran og já-
kvæðan boðskap. Ræðan er Þýdd úr ensku og birtist hér
nálega 011.]
TEXTI: „Legg þú úl á djúpið . . ." (Lúkas 5:4.)
Á hverjum Drottins degi, er ég prédika í þessari nýju
kirkju, verður æ þrennt mér til hrifningar: Fyrir framan
mig í prédikunarstólnum er opin Biblía, í bekkjunum situr
fólk, sem hlýðir hugfangið á orð Guðs, og er ég lít fram
til dyra blasir við augum mínum fagurlega skreyttur
gluggi, er bregður upp mynd frá Galelíuvatninu. Á vatninu
sést fiskibátur og menn, sem eru að draga inn net hlaðið