Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1955, Blaðsíða 19

Sameiningin - 01.10.1955, Blaðsíða 19
Sameiningin 41 verkamanni hans, dr. Haraldi Sigmar, er var hindraður frá að vera við útförina lasleika vegna. Einnig mælti sóknar- prestur umhverfisins og nágranni hins látna kveðjuorð. Undritaður stjórnaði athöfninni og flutti kveðjumál. Hart- nær 300 manns mun hafa verið viðstatt útförina. — Ástvinir Þorsteins J. Gíslasonar, ásamt fjölmennum hópi frændliðs, samherja og vina, tileinka honum og helga minningu hans orð skáldsins: — „Vertu sæll, við söknum þín.“ —S. Ólafsson ☆ ☆ ☆ Þorsteinn J. Gíslason Fæddur 12. maí 1875 — Dáinn 19. júlí 1955 (Stutt kveöja tileinkuð ástvinum hins látna og samtíðarsveit hans) Látni vinur! Þrautin þunga þín er sigruð, hlotin grið. Dauðinn bæði aldna og unga yfirstígur heims um svið. Hvíld er þreyttum kvala stillir, kærleiksrík, af mörgum þráð. Ekkert framar vegu villir, vald er allt í Drottins náð. Kæri vinur! Löng var leiðin, lúin hönd af framtaks plóg. Brautryðjandans göfgis greiðinn goldinn samtíð; rótað skóg landnemans um lendur víðar, lítt var slórt um morgun stund, unz að lokum ævitíðar endurminning kætir lund. Góði vinur! Þér við þökkum þreytt til dáða gæðasafn. Hnýpir byggðin huga klökkum, hylur gleymskan sízt þitt nafn meðan íslenzk öld hér dvelur. Engum fyrnist leiðsögn þín, þeim, er nutu; þögnin elur þrotalöm, samt minning skín.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.