Sameiningin - 01.10.1955, Síða 28
50
Sameiningin
steindórssyni og prentuð af Bókagerðinni Lilju í Reykjavík
árið 1947 (152 blaðsíður).
Stuttur formáli er skrifaður af höfundinum og segir
meðal annars:
„Þessi bók er að mestu leyti úrdráttur úr dagbókum
mínum frá stríðsárunum. Hún segir frá kynnum mínum af
mönnum, sem dæmdir voru til dauða, þegar ég var fangelsis-
prestur í Akerhus“.
Útgefendur fylgja bókinni úr garði með þessum um-
mælum:
„Dagfinn Hauge var fangelsisprestur í Akurhus fangels-
inu í Osló á stríðsárunum. Þar vann hann ómetanlegt starf
meðal landa sinna, einkum þeirra, sem dæmdir höfðu verið
til dauða. í bókinni „Hetjur á dauðastund", segir hann frá
kynnum sínum af nokkrum mönnum, sem teknir voru af
lífi í fangelsinu. Fékk hann t. d. oft tækifæri til að vera
hjá þeim síðustu nóttina, sem þeir lifðu og hafði því góða
aðstöðu til að kynnast baráttu þeirra og sálarþreki. Enn-
fremur rekur hann oft að nokkru mál þessara manna ,svo
áð í bókinni eru ýmsar glöggar upplýsingar um þau átök,
sem áttu sér stað í Noregi á stríðsárunum.
Bók þessi hefur vakið geysimikla athygli um öll Norður-
lönd og verið gefin út í fjölda mörgum útgáfum“.
Þessi ummæli eru nægileg til að vekja athygli á bók-
inni. Hér er lýst látlaust og blátt áfram frelisbaráttu frænda
okkar, ódauðlegri trú og hreysti, — dásamlegum hetjum
á dauðastund.
Ég gríp niður á nokkrum stöðum 1 bókinni:
„Dr. Oftedahl benti mér dag nokkurn fyrir jólin á þessi
orð í Biblíunni:
„Hef ég ekki útvalið yður tólf — og einn af yður er
djöfull.“ Þessi orð virtust eiga vel við nú. Tólfti maður
hafði verið við málið riðinn. Hann hafði komið sér í mjúkinn
hjá þeim og þótzt ætla að vinna með þeim fyrir föðurlandið.
En fyrr en varir er Gestapo komin. Þá fyrst varð þeim ljóst,
að sá tólfti var djöfull“.
Það var Júdas á meðal þeirra.
„Biðtíminn í Akurhus-fangelsinu virtist ekki vera eins
óttalegur og við hefði mátt búast. Einar Hoseth sagði:
„Þegar ég hef lesið í dagblöðunum um dauðadóm, hef ég