Sameiningin - 01.04.1949, Side 3
SAMEININGIN
49
PÁSKAR
Upprisuljós þitt lát, upprisni Drottinn, oss lýsa,
eilífs til samfundar með þér oss leiðina vísa. —
Deyð sálna deyð,
deygð vora spillingar neyð,
upp lát oss andlega rísa.
(HELGI HÁLFDÁKARSON)
Einn aðal þátturinn í vor—fögnuði manna í köldum lönd-
um er orsakaður af hækkandi sól og löngum dögum er vori
fylgja. — Þegar að sólin blessuð tekur að hækka á lofti
öðlast hugir vorir nýtt lytimagn trúarinnar á Guð, lífið
og tilveruna. Birtan og hið endurvaknaða líf, sem að hvar-
vetna er sýnilegt, og vori er jafnan fylgjandi, skapar nýtt
vor í sálunum — enda þótt að sjálft æskuvor einstaklingsins
sé löngu síðan liðið hjá.—
Birtan sem vorinu fylgir er svo fögur og hugum kær,
því að þrátt fyrir alt — erum vér ljóssins börn. Hún minnir
oss á trúfesti skaparans, er birtist oss á ný í hringrás árstíð-
anna. En hún á einnig táknræna merkingu í sér fólgna, því
að hún minnir hvern trúaðan lærisvein svo kröftuglega á
hina blessuðu ljóss og sigurhátíðpáskahátíðina, sem á valt
kemur til vor mannanna að vori til og gefur hinni ytri vor-
komu ævarandi þýðingu og eilíft gildi. Hún talar til allra
jafnt yngri sem eldri, en ekki sýzt til þeirar sem þreyttir
eru. margt hafa reynt — og átt hafa mörgum kærum á bak
að sjá.
Eins og hækkandi vorsólin þurkar burtu úr huga endur-
minningarnar um dimmu hjáliðins vetrar, þannig nemur
blessuð páskahátíðin burtu úr hjörtum kristinna manna
allann ugg og kvíða sem að jarðlífinu svo oft fylgir;
eygjir marga sára lífsreynslu í nýju ljósi, og lætur oss augna-
bliksins börn til þess finna með óbifanlegri blessaðri vissu,
að lífið hefir eilíft áframhald, fyrir sigrandi mátt Jesú upp-
risu, sem oss brotlegum jarðarbörnum fellur í skaut fyrir
trú á hann.