Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1949, Page 5

Sameiningin - 01.04.1949, Page 5
SAMEININGIN 51 HALLGRÍMUR PÉTURSSON æfi hans og starf Eftir MAGNÚtí JÓNSSON, PROFESSOR, DR, THEOL, (Útdráttur) í þeim kafla er höf. nefnir Efri ár og œfilok, er frá því sagt, að eftir komu séra Hannesar Björnssonar til Saurbæjar þinga, fór séra Hallgrímur að Kalastöðum til Eyjólfs sonar síns, er þar bjó, og mun hafa haft nokkur sérstök afnot jarðarinnar í eigin þágu. Þar dvöldu þeir feðgar í 2 ár, en fluttust þá að Ferstiklu, sem var ein af þeim jörðum, sem sr. Hallgrimur fékk sér til uppeldis; fara ekki sögur af honum eftir að hann fluttist þangað, “nema þær sem ljóð hans bera oss. Hann virðist hafa ort fram í anldátið, svo að segia, og haldið fullum sálarkröftum. Hefir Eyjólfur sonur hans lík- lega ritað sálmana eftir honum, heldur en svo væri, að séra Hannes hafi gert það.” Hér, í téðum hluta bókarinnar gerir höf. athugasemdir um sjúkdóm séra Hallgríms. “Þeir er ritað hafa um æfi hans, telja hann verða líkþráan á árunum 1665—1666.” “Er og auðséð, að hann hefir fengið einhver langvinn vanheilindi og líklegast að verið hafi holdsveiki, sem um þessar mundir var afar tíð. Sögurnar um þetta er og erfitt að véfengja, því þær hafa geymzt þar á staðnum, og meðal annars hefir séra Þorvarður Auðunnarson getað skýrt Hálfdáni Einars- syni frá þessu, og svo hefir einn eftir öðrum.” Höf. vekur athygli á því, að hvergi er að þessu vikið í ljóðum skáldsins. Orðið “holdsveiki” er þrjóti, þegar lífið þver,” er í einu ljóði hans. — “En væri við ekkert annað að styðjast, myndi engan vegin vera hægt að ráða af þessu það, að hann ætti við nokkurn sérstakann sjúkdóm. Hann á við veiki, sjúkleik holdsins, þ.e. líkamans. “Holdsveikin þrýtur þá,” þ.e. þá linnir þrautum líkamans. Miklu algengara orð var líkþrá eða spítelska, ef átt var sérstaklega við þann sjúkdóm, sem nú er kallaður holdsveiki, en þó var þetta nafn, holdsveiki, einnig haft um hann. Annars er aldrei að öðru vikið en sjúkdómi alment, hvorki í ljóðum Hallgríms né ummælum annara. Síðustu sálmarnir sýna að hann hefir haft sjón alveg fram undir andlátið.” Víkur höf. nánar að þessu, í sambandi við sjálfa Passíu- sálmana, og uppruna þeirra í öðru hefti bókarinna.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.