Sameiningin - 01.04.1949, Síða 6
52
SAMEININGIN
“Hallgrímur andaðist á Ferstiklu, 27 okt., 1674. Var hann
þá sextugur, en 30 ár voru liðin frá víglsu hans. Hann var
jarðaður framan við kirkjudyr í Saurbæ 31. okt. s.á.”
Þótt Guðríður væri 16 árum eldri en maður hennar lifði
hún hann. Dvaldi hún á Ferstiklu hjá Eyjólfi syni sínum,
er andaðist 1679, eftir lát hans dvaldi hún í Saurbæ hjá séra
Hannesi, og andaðist þar, 18. desember, 1682, og var jarðsett
20. s.m. — Legsteinn er á leiði séra Hallgríms, var settur
þar um 1820, að atbeina Stefáns Amtmanns Stephensen á
Hvítárvöllum, — af Magnúsi Stephensen bróður hans. —
Útlit og ytri hættir
í þessum hluta bókar sinar dvelur höf. fyrst við mynd
þá af séra Hallgrími sem almenningi er kunnug, sem er
gerð af séra Hjalta Þorsteinssyni í Vatnsfirði, og er nú í
Þjóðminjasafninu í Reykjavík, þangað gefin af Sigurði
Kristjánssyni bóksala. Höf. segir að séra Hjalti væri ágætur
málari talinn. Telur hann séra Hjalta hafa einmitt haft
góða afstöðu til að mála rétta og góða mynd af séra Hall-
grími. Gerir hann grein fyrir því á þennan hátt: —
Þórður biskup Þorláksson var uppalinn af föðurbróður
Hallgríms Péturssonar, Hallgrími Guðmundsyni í Gröf á
Höfðaströnd, frænda sínum. “Hann hlaut því að bera sér-
stakann ræktarhug til þessara frænda sinna. Árið 1656 fer
hann utan í Hafnarfirði, og er þá mjög sennilegt, að hann
hafi komið við í Saurbæ í suðurleið, og einnig bæði fvrr og
síðar gat hann iðuglega hitt séra Hallgrím. En nú var Þórður
biskup einmitt talsvert liðtækur málari, og hvað er senni-
legra en það, að hann hafi gert mynd af séra Hallgrími, ann-
aðhvort 1656, eða í annað skipti. Síðar var svo séra Hjalta
komið til Þórðar biskups ,og er þess beinlínis getið að biskup
hafi haldið honum “jafnan til að læra og iðka sig í afrissing-
um ýmislegum, skillerí og málverk” * Hér gæti því ferill
myndarinnar verið rakinn. Þórður biskup hefir gert mynd-
ina af séra Hallgrími og séra Hjalti haft hana fyrir sér, er
hann gerði sína mynd, og notið jafnvel gagnrýni og aðstoðar
Þórðar biskups. Eru því allar líkur til þess að mvndin sé í
aðalatriðum rétt.”
Þá víkur höf., einnig að lýsingum sem til eru af Hall-
grími, og lætur svo ummælt að elzta lýsingin sé í presta-
* ísl. listamenn, bls. 2. og tilvitnanii- þar.