Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1949, Síða 7

Sameiningin - 01.04.1949, Síða 7
SAMEININGIN 53 sögum séra Jóns Halldórssonar er lýsir honum svo: “Að ytra áliti hafði hann verið stór, luralega vaxinn, skinndökk- ur, stirðraddaður í söng, í siðferði uppá slétta bændavísu, glaðsinnaður og skemmtinn, en gáfuríkur prédikari og bezta skáld hér á landi á seinni tímum, hvar um ljósast vitna hans bæklingar.” Eftir ýmsar fróðlegar tilvitnanir í fornar sagnir um séra Hallgrím; lýkur Dr. Magnús, þessum þætti með svofeldum orðum: — “Myndin af séra Hallgrími í útliti og ytri háttum er í raun og vera furðu skýr, eftir þessu fáa sem vér vitum um hann. Hann er stór og riðvaxinn, dökkur yfirlitum, en hær- ist með aldri, ákaflega svipmikill, skeytir lítt um klæðaburð, og hefir háttsemi bænda. Ég er t.d. alveg óviss um, að hornístöðin, sem hann á hafa notað í alþingisreið, hafi stafað af því einu að þau væru mýkri við fótinn. Það gat litlu munað. En þau hafa sennilega tíðkazt töluvert meðal bænda, og Hallgrímur hefir verið ófeminn að halda þeirri venju.”—• í þættinum um Skapferli Hallgríms er að því vikið að hann virðist í æsku ódæll verið hafa; telur höf., að náfrændi Guð- brands biskups búin slíkum gáfum er Hallgrím prýddu hefði getað gengið beina braut til lærdóms og frama. Getur hann þess til að alt hafi gert verið sem að unnt var, til þess að halda honum að námi, þótt ekki bæri tilætlaðan árangur. En “órói listamannsins bar allt annað ofurliði.” Bent er hér á það hversu ógjarn Hallgrímur er á persónulegar af- brotajátningar, einnig frá ungþroska árum. Um það er kom- ist að orði á þessa leið: “Enn þess verður ekki vart, að hann sé haldinn neinni djúpri hrygð yfir líferni sínu í sæku eða þeirri stefnu sem hann tók þá, þó að hann játi barnabrek sín og vari unglinga við óráðþægni. Hafa verður þó í huga hér sem annarsstaðar þagmælsku Hallgríms um sinn innra mann. Hér verður að fara varlega í að álykta af þögninni. Hallgrímur yrkir hvergi sínar persónulegu játningar, en snýr öllu upp í almennar reglur. En hvort sem vér ályktum af því fáa, sem hann segir, eða því, sem hann þegir um, hljótum vér að komast að þeirra niðurstöðu að bernskubrek Hallgríms hafi verið meinlaus og hann hafi ekki séð eftir þeirri ákvörðun, sem hann tók.”

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.