Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1949, Side 10

Sameiningin - 01.04.1949, Side 10
56 SAMEININGIN í hverja byggingu. Það má sjá á öllu að fé, hugsun og kraft- ar hafa afkastað miklu hér og snúið villi skóg í fagran, sælu- stað. Um þrjátíu svefn skálar geta hýst um þrjú hundruð manns og borðstofan rúmar jafn marga í einu. Drengja hóp- ur sá er var þar dagana mína í “Camp” var um tvö hundruð áttatíu og sjö, með kennurum og leiðtogum, taldist meir en þrjú hundruð í alt. Hver hópur er þar frá viku til tveggja vikna tíma og þetta síðastliðið sumar innskrifaðist 1600 ungmenni þá tvo mánuði sem þessi “Camp” starfar. Sá drengja hópur er ég sá fyrstu vikuna mína í “Camp” voru frá fimtán ára til tvítugs aldurs og sjaldan hef ég séð jafn stóran hóp af unglingum jafn háttprúða, þó fjörugir væru. Mikil gleði ríkti í Camp Nawakwa alla daga og heyra mátti hláttur og söng því mikið er leikið og mikið er sungið þar. Þessum nemendum var skift í flokka, tíu í hverjum flokk og leiðtogi í hverjum svefn skála. Leiðtoginn var vel full- orðinn og vel æfður í því starfi sem honum var falið að gjöra. Hver dagur byrjaði kl. 7:00 með biblíu lestri og bæn hver í sínum skála. Borðbænir og sálmar sungnir við hverja máltíð og framúrskarandi alvara ríkti þegar Guðs orð var haft um hönd. Tveimur klukkutímum á hverjum morgni var varið til kennslu í kristindóms fræðum með æfðum kennurnum og prestum. Eftir miðdagsverð var drengjum gefið frí að leika sér eða gjöra hvað þeir helst vildu og leiðtogar hvers hóps var með þeim í öllum þeirra leik. Sumir kusu að lesa í lestrar- stofunni eða æfa sig í söng eða búa sér til eitthvað þarflegt og fallegt í “Arts and Crafts” herbergjunum. Æfingar í sálmasöng eða söng fyrir kvöldskemtunina mátti heyra frá samkomusalnum og hvað þessir piltar höfðu gaman af söng. Kl. 7:00 á hverju kvöldi var guðþjónusta og oftast undir beru lofti þegar veður leyfði og þá á brekku mót sígandi sól. Yndislega fögur mynd geymist í hjarta mínu af þessum heilögu kvöldstundum. Eldri hópur af stúlkum tók við þegar piltarnir hurfu heim

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.