Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1949, Síða 11

Sameiningin - 01.04.1949, Síða 11
SAMEININGIN 57 í ýmsar áttir og margir ferðuðust langar leiðir til annara ríkja, þessar 292 stúlkur frá 14 ára til tvítugs voru ekki síður í daglegri framkomu, fallegar, siðprúðar og fjörugar í leik. Fyrstu árin í Camp Nawakwa var aðsókn um þrjú hundr- uð þar til nú í sumar innskrifuðust sextán hundruð nemend- ur, flest ungmenni innan við tvítugt. Hvaða árangurs má búast við frá þessum stóra hóp? Ráðsmaðurinn séra Berk- heimer sagði að arangur væri helst sjáanlegur í heimakrikj- um þessara ungmenna — þáttaka í öllum félagsskap. Allmargir af þessum stóra hóp koma til Camp Nawakwa ár eftir ár og mikill gaumur gefin hve vel er fylgt öllu því sem kennt er og hve vel er starfað í öllum félagsskap innan kirkju hvers eins. Þá daga er ég var í Camp Nawakwa hugsaði ég oft til sumarbúða B.L.K. og efast ég um að þessi skáli hafi verið nokkuð lengra á veg kominn eftir þriggja ára starf en Sunrise Lutheran Camp er nú. Ég sá árangur af tuttugu ára starfi og fannst mikið til um. En ef góðir kristnir menn og góðar kristnar konur í ísl. Lút. kirkjum vorum, beita kröftum sínum til að styrkja þetta starf sem Bandalagið stendur fyrir, þá vitum við ekki hvað mikill árangur sést eftir jafn mörg ár. Kristindóms fræðsla hefur, frá því fyrsta að Bandalag Lúterskra Kvenna var stofnað verð efst á blaði og margs- lags aðferðir notaðar til að hrinda því í framkvæmd. Hvert nýtt spor í þessa átt hefur leitt til annara og eru Sumarbúðir Bandalags Lúterskra Kvenna hið síðasta og stærsta spor fé- lags vors. Camp Nawakwa er vissulega fögur friðarhöfn, fullkom- in í alla staði og sýnir framúrskarandi árangur í kristnu starfi og alt af því að Guð elskandi fólk hefur fórnað kröft- um sínum til að ná þessu háfleyga takmarki. Þetta sama er að gjörast í Sunrise Lutheran Camp. Áhugasamt og innilega kristið fólk hefur fórnað þar kröftum sínum með það eitt í huga að ná þessu sama tak- marki, og að hjálpa á þann hátt til að trygja framtíð vorar Lútersku kirkju í þessu blessaða landi.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.