Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1949, Page 12

Sameiningin - 01.04.1949, Page 12
58 SAMEININGIN DR. CLARA A. SWAIN Fyrsti Kvenntrúboðs læknir í Austurlöndum Eftlr G. J. OLESON Árð 1869 fóru fyrstu Kvenntrúboðarnir til Austurlanda, og voru fyrstu frumherjarnir í mentamála og heilbrigðis- starfi trúboðsins í Asíu. Isabella Thorburn stofnaði fyrsta kristinn skóla íyrir kvennfólk í Asíu, en Clara A. Swain fyrsta sjúkrahús fyrir konur. Clara A. Swain var uppalin í þorpinu Castile í New York og þar eyddi hún æsku árun- um. Hún hafði framsóknar þrá fram yfir það sem alment gerðist, og hún ásetti sér að ná hærri mentun, jafnvel þó hún þyrfti að leggja mikið á sig, og þyrfti að fórna miklu í þá tíð var andúðin mikil á móti heiðingjatrúboðs starf- inu, og þeirri hugmynd að kvennfólk fengist við læknisstörf. Álit almennings var svo strangt á móti trúboði, að hver sem tók þá stefnu var helzt útskúfaður úr mannlegu íélagi, en tvöfalt strangara var almennings álitið á móti konum sem trúboðslæknum. Þrátt fyrir þennan hugsunarhátt fólks ásetti Clara Swain sér að læra læknisfræði, og hún út- skrifaðist úr læknaskóla fyrir konur í Philadelphia (Women’s Medical College) 1869, og hugur hennar stefndi að því að reka starfið þar sem mest var þörfin. Á þessum tíma hafði fólk óljósa hugmyndir um heil- brygðis ástandið í Austurlöndum, en það sem að hún aflaði sér af þekkingu í þessum greinum sannfærði hana um það að í þeim efnum væri þörfin brýn á Indlandi. Þekk- ing manna á heilsufræði og læknisfræði var engin meðal alþýðu, en hjátrú og bábyljur héldu mönnum í fjötrum og dróu lífsþróttinn úr þörfinni. — Nú voru konur í Bandaríkjunum að hefja samtök um trúboðsstarfið, og á því sama ári 1869 sendu þær Dr. Clara A. Swain til Barully á Indlandi. Þegar hún sá ástandið eins og það var, og skildist hvað hjálparvana hún var, fékk hún sex þarlendar stúlkur sem voru flestar Kynblendingar (Indversk-Evrópískar), og sem höfðu, fengið undirstoðu mentun, sér til aðstoðar, og eftir því sem kringumstæður leyfðu, bættust fleyri í hópinn. Um þriggja ára bil kendi Dr. Swain stúlkum þessum læknisfræði, og loks er þær gengu undir próf hjá þremur enskum læknum, fengu þrettán af þeim bréf til að lækna.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.