Sameiningin - 01.04.1949, Blaðsíða 14
60
SAMEININGIN
vini sína að fara með sér í þessa hættu för. Prinzinn hafði
verið hávðer um það að enginn kristinn maður skyldi stíga
fæti inn í sína borg, en samt sem áður var henni ráðlagt
af Breska höfuðsmanninum að hún skyldi fara, og persónu-
lega flytja erindið. Svo hún lagði á stað ákveðin í því að
taka því sem að höndum bæri.
Er þessi Indverski höfðingi frétti um væntanlega gesti
sendi hann til móts við þau fríða móttöku sveit, voru þar
24 hestar glæsilegar ríkis kerrur með ríðandi fylgdar og
varnar liði, var gestunum vísað til veglegrar hallar, sem
notuð var fyrir tigna gesti. Áttu þau þar hinum glæsilegustu
viðtökum að fagna.
Daginn eftir var þeim veitt leyfi að bera fram erindi
sitt og var þeim veitt móttaka í höllinni með mikilli viðhöfn,
eftir að kveðjur voru fram bornar á viðeigandi hátt og
kurteysisreglum framfylgt, gaf æðsti ráðherra til kynna að
erindið skyldi borið upp. Dr. Thomas sá sem orð hafði fvrir
gestunum gat aðeins lauslega skýrt frá í hvaða tilgangi þau
óskuðu að kaupa þennan land blett, er prinzinn greip fram
í brosandi og með yndisþokka og sagði: “Takið það, takið
það! Ég gef yður það með mikilli ánægju fyrir slíkt fyrir-
tæki.”
Á landspildu þessari voru tvö hús úr múrsteini stór og
vegleg, tveir brunnar voru þar snotrir garðar með trjám og
blómum. —
Þegar trúboðarnir komu heim aftur var gleði í hjarta
þeirra huga og sinni, sneru þau til Guðs með þakklæti í
hug fyrir þennan mikla sigur fyrir málefni þeirra.
Eftir 5 ára starf á Indlandi hvarf Dr. Swain heim til Banda-
ríkjanna sökum heilsu brests, eftir fjögur ár var hún búin
§ð ná svo góðri heilsu aftur að hún treysti sér til að taka
við starfinu aftur sem hjarta hennar var kærast. í fjarveru
hennar hafði því verið haldið áfram með góðum árangri.
Þessi auðmjúka og merkilega kona átti nú fyrir hendi
merkilegt æfintýri, sem varð henni mikill styrkur í starfi
hennar.
Svo bar við ári eftir að hún kom til Indlands aftur, heim-
sótti hana einkaritari æðsta valdmannsins (Rajah) í Khetri.
og mæltist til bess að hún gæfi kost á því að koma og stunda
Valdmanns frúna sem sjúk var ef hún væri kölluð. Mánuði
seinna var hún kölluð með hraðskeyti. Var hún flutt á ríkis-