Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1949, Page 16

Sameiningin - 01.04.1949, Page 16
62 SAMEININGIN HVAÐ ER BIBLÍAN? SÉRA SIGURBJÖRN EINARSSON þjddi Htytt endursögn á kafla í bók Bo Giertz DEN STORA LÖGNEN OCH DEN STORA SANNINGEN Engum kristnum manni hefur nokkurn tíma til hugar komið, að allt í Biblíunni sé jafn mikilvægt, hafi sama beina hlutverki að gegna sem vitnisburður um Guð. Engum sálu- sorgara kemur til hugar að ráða mönnum að lesa Biblíuna í belg og biðu. Allir, sem iðka biblíulestur, vita, að þeir hafa að jafnaði meira að sækja í Nýja en Gamla testamentið, meira í Sálmana og Jesaja en Kroníkubækurnar. Það er góð og gömul regla, að sá, sem ekki er handgenginn Biblí- unni, skuli ekki byrja lestur sinn á 1. Mósebók, því að þá kemst hann að líkindum aldrei lengra en út í þá 3., heldur á einhverju guðspjallanna. Og þetta er ekkert undarlegt, ef athugað er, hvað Biblían vill vera. Biblían er vitnisbuður um Krist. Það má líkja henni við stórt málverk, sem dregur upp mynd Frelsarans. Þegar menn horfa á málverk af mann, beinist athyglin fyrst að andlitinu, því að andlitssvipurinn birtir öðru framar huga og skaphöfn mannsins. En líkamsbyggingin hefur líka sitt til málanna að leggja, tilburðir, klæðaburður. Og loks ber að gefa gaum að bakgrunninum. Málarinn vill túlka eitt- hvað með umhverfinu, lýsingu og skyggingu og allri bygg- ingu og samsetningi myndarinnar. Allt hjálpar á sinn hátt til þess að gæða myndina lífi. Eins er sú Krists-mynd, sem Guð hefur gefið oss í Biblí- unni. Sú mynd hefur sitt andlit, þangað verður oss oftast horft. Andlitið er dregið upp í guðspjöllunum. En mvndin er í fullri stærð. Hún verður hvorki fullkomin né sönn, ef þess er ekki gætt. Vér fáum bygginguna alla í bréfunum og öðrum ritum N. t. Og loks hefur Krists-mynd Biblíunn- ar sinn bakgrunn og umhverfi og nýtur sín ekki án þess. Þetta umhverfi felur í sér sæg atburða og persóna .Má vera, að margbreytnin virðist fyrst í stað til truflunar. En þegar maður hefur komið auga á, hvernig þessu öllu er skipað um meginmyndina, þá fæst yfirsýn yfir það og merking í það. Á framsviðinu er Pétur, Páll, Jakob og Jóhannes og öll

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.