Sameiningin - 01.04.1949, Síða 16
62
SAMEININGIN
HVAÐ ER BIBLÍAN?
SÉRA SIGURBJÖRN EINARSSON þjddi
Htytt endursögn á kafla í bók Bo Giertz
DEN STORA LÖGNEN OCH DEN STORA SANNINGEN
Engum kristnum manni hefur nokkurn tíma til hugar
komið, að allt í Biblíunni sé jafn mikilvægt, hafi sama beina
hlutverki að gegna sem vitnisburður um Guð. Engum sálu-
sorgara kemur til hugar að ráða mönnum að lesa Biblíuna
í belg og biðu. Allir, sem iðka biblíulestur, vita, að þeir hafa
að jafnaði meira að sækja í Nýja en Gamla testamentið,
meira í Sálmana og Jesaja en Kroníkubækurnar. Það er
góð og gömul regla, að sá, sem ekki er handgenginn Biblí-
unni, skuli ekki byrja lestur sinn á 1. Mósebók, því að þá
kemst hann að líkindum aldrei lengra en út í þá 3., heldur
á einhverju guðspjallanna. Og þetta er ekkert undarlegt, ef
athugað er, hvað Biblían vill vera.
Biblían er vitnisbuður um Krist. Það má líkja henni við
stórt málverk, sem dregur upp mynd Frelsarans. Þegar
menn horfa á málverk af mann, beinist athyglin fyrst að
andlitinu, því að andlitssvipurinn birtir öðru framar huga
og skaphöfn mannsins. En líkamsbyggingin hefur líka sitt
til málanna að leggja, tilburðir, klæðaburður. Og loks ber
að gefa gaum að bakgrunninum. Málarinn vill túlka eitt-
hvað með umhverfinu, lýsingu og skyggingu og allri bygg-
ingu og samsetningi myndarinnar. Allt hjálpar á sinn hátt
til þess að gæða myndina lífi.
Eins er sú Krists-mynd, sem Guð hefur gefið oss í Biblí-
unni. Sú mynd hefur sitt andlit, þangað verður oss oftast
horft. Andlitið er dregið upp í guðspjöllunum. En mvndin
er í fullri stærð. Hún verður hvorki fullkomin né sönn,
ef þess er ekki gætt. Vér fáum bygginguna alla í bréfunum
og öðrum ritum N. t. Og loks hefur Krists-mynd Biblíunn-
ar sinn bakgrunn og umhverfi og nýtur sín ekki án þess.
Þetta umhverfi felur í sér sæg atburða og persóna .Má vera,
að margbreytnin virðist fyrst í stað til truflunar. En þegar
maður hefur komið auga á, hvernig þessu öllu er skipað um
meginmyndina, þá fæst yfirsýn yfir það og merking í það.
Á framsviðinu er Pétur, Páll, Jakob og Jóhannes og öll