Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1949, Page 17

Sameiningin - 01.04.1949, Page 17
SAMEININGIN 63 frumkirkjan. Fjarst í baksýn gægist fram tómið mikla og myrka og yfir því máttarorð Guðs: Verði! Síðan koma þeir hver á fætur öðrum: Abraham á leið til hins fyrir- heitna lands, Jakob, horfandi á himnastigann í Betel, Jósef, seldur mansali til Egiptalands. Þar sést eldstólpinn og skýið, fyrirmyndan Krists og leiðsagnar hans út úr þrældómshús- inu. Þar leiftra eldingarnar um Sinai. Síðan kemur öll þessi örglögþrungna saga, sagan um ögun og uppfóstran þessar- ar þjóðar, sem Messías skyldi fæðast af. Þar ber mest á spámönnunum. Allir benda þeir til Krists og frá þeim öllum falla ljósbrot yfir mynd hans. Þannig lykst G. t. um Krist eins og lifandi umgjörð og bakgrunnur. Það gefur ekki aðeins hugmynd um þann heim, sem hann fæddist til, held- ur líka skuggann af honum sjálfum, já, útlínur sjálfrar myndar hans. G. t. er líkt málverki þar sem sjálfa hina miklu meginmynd vantar enn. í miðið er aðeins stór eyða sem sýnir ummörk Mannssonarins og kirkju hans. N. t. fyllir þessa eyðu. — Þessi líking getur e. t. v. hjálpað til að skilja, hvers vegna G. t. er ómissandi og raunverulegur boðskapur frá Guði sjálfum, enda þótt það sé ekki sambærilegt við N. t. Það er munur á bakgrunni og myndinni sjálfri. Þetta getur líka hjálpað til að skýra þau torskildu atriði, sem fyrir verða. Ef rýnt er í málverk með stækkunargleri, kemur í ljós, að enginn pensildráttur er nákvæm samsvörun veru- leikans. Ekki eitt hár, felling eða hrukka er dregin af ná- kvæmni ljósmyndarinnar. Og samt er ekki að efa, að mynd, sem er máluð af listamanni, er miklu auðugri og sannari en ljósmynd getur nokkru sinni orðið. Listamaðurinn túlkar persónueinkenni og meginatriði. Hann handsamar í einni mynd það, sem kemur fram við ólíkustu tækifæri eða hylst bak við hversdagssvip mannsins. Þannig gerir listamaður margfalt raunhæfari, ljósari og sannari mynd en mögulegt er með hinni fullkomnustu ljósmyndun. Sama máli gegnir raunar um frásögn í orðum. Sá, sem sögu segir, er líka listamaður, þótt hann noti orð en ekki liti. Þegar lýst er einhverju, sem hefur borið við, hentar ekki alltént að týna allt til. Það verður að velja og hafna. í því er einmitt listin fólkin að ná því, sem máli skiptir, taka meginatriði og einkennisdrætti og skipa efninu þann- ig, að úr verði mynd, sem sé bæði lifand og sönn. Og sönn

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.