Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1949, Page 18

Sameiningin - 01.04.1949, Page 18
64 SAMEININGIN er hún, ef það, sem fram kemur, er megin drættir og sér- kennisatriði. Sá, sem segir frá, er líka málari, ekki ljósmynd- ari. Ljósmyndun söguefnis er ekki möguleg. Nú efast enginn trúaður maður um, að Biblían flytji þann sannasta vitnisburð, sem fluttur verður á mannlegu máli, um innsta, dýpsta og sannasta glidi Krists, lífs hans og verks. Þessa mynd þarf ekki að yfirmála, endurmála, skýra eða hreinsa. Það þarf ekki heldur að brjóta heilann um, hvort það, sem frá er sagt, hafi við borið nákvæmlega í þeirri röð, sem frá er greint, hvort þessi eða hinn hafi í raun og veru verið viðstaddur þennan eða annan viðburðinn, hvort eitthvað eigi að skiljast sem greinargerð raunverulegs söguatburðar eða sem dæmisaga eða skýring einhverra sér- stakra sanninda. Myndin getur verið bæði stílfærð og gerð einfaldari, einstök atriði geta verið flutt til. Kirkjan hefur á öllum tímum, vitað þetta. En láti maður þetta allt sam- verka og horfi á heldarmyndina, þá flytur Biblían þann vitnisburð, sem er sú sannasta og ábyggilegasta mynd af Kristi, sem hægt er að gefa með orðum og hugtökum manna. Hitt er annað mál, að þessi mynd felur ekki í sér allan sannleikann. Hér á jörð er þekking vor á Guði í molum. Orð vor og hugtök hrökkva ekki til þess að lýsa hinum eiflífa i'g þríeina. En sannari mynd en þá, sem Biblían geymir, getum vér aldrei fengið, og hún nægir oss til hjálpræðis. Það, sem er fram yfir, fáum vér að vita fyrst þegar “hið fullkomna kemur”. Hér á jörð er enginn annar kristindóm- ur til en kristindómur Biblíunnar, enginn önnur þekking á Guði en sú, sem Hann, sem “hallast að brjósti föðursins”, hefur veitt oss, og enginn annar vegur til hans en hjálp- ræðisboðskapur Biblíunnar. VÍÐFÖRLI I, 3 ____________________4-___________________ Hin stórmerka bók Dr. Magnúsar Jónssonar um Hallgrím Pétursson æfi hans og starf, er H. F. Leiftur í Reykjavík gefur út, og kostar á íslandi kr. 150.00 fæst hjá útgefendum í Reykjavík vestur um haf send fyrir $10.00 fyrirfram borg- un. Þessi vildarkjör eru að þakka milligöngu höfundarins Dr. Magnúsar Jónssonar.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.