Sameiningin - 01.04.1949, Blaðsíða 18
64
SAMEININGIN
er hún, ef það, sem fram kemur, er megin drættir og sér-
kennisatriði. Sá, sem segir frá, er líka málari, ekki ljósmynd-
ari. Ljósmyndun söguefnis er ekki möguleg.
Nú efast enginn trúaður maður um, að Biblían flytji
þann sannasta vitnisburð, sem fluttur verður á mannlegu
máli, um innsta, dýpsta og sannasta glidi Krists, lífs hans og
verks. Þessa mynd þarf ekki að yfirmála, endurmála, skýra
eða hreinsa. Það þarf ekki heldur að brjóta heilann um,
hvort það, sem frá er sagt, hafi við borið nákvæmlega í
þeirri röð, sem frá er greint, hvort þessi eða hinn hafi í raun
og veru verið viðstaddur þennan eða annan viðburðinn,
hvort eitthvað eigi að skiljast sem greinargerð raunverulegs
söguatburðar eða sem dæmisaga eða skýring einhverra sér-
stakra sanninda. Myndin getur verið bæði stílfærð og gerð
einfaldari, einstök atriði geta verið flutt til. Kirkjan hefur
á öllum tímum, vitað þetta. En láti maður þetta allt sam-
verka og horfi á heldarmyndina, þá flytur Biblían þann
vitnisburð, sem er sú sannasta og ábyggilegasta mynd af
Kristi, sem hægt er að gefa með orðum og hugtökum manna.
Hitt er annað mál, að þessi mynd felur ekki í sér allan
sannleikann. Hér á jörð er þekking vor á Guði í molum.
Orð vor og hugtök hrökkva ekki til þess að lýsa hinum eiflífa
i'g þríeina. En sannari mynd en þá, sem Biblían geymir,
getum vér aldrei fengið, og hún nægir oss til hjálpræðis.
Það, sem er fram yfir, fáum vér að vita fyrst þegar “hið
fullkomna kemur”. Hér á jörð er enginn annar kristindóm-
ur til en kristindómur Biblíunnar, enginn önnur þekking á
Guði en sú, sem Hann, sem “hallast að brjósti föðursins”,
hefur veitt oss, og enginn annar vegur til hans en hjálp-
ræðisboðskapur Biblíunnar.
VÍÐFÖRLI I, 3
____________________4-___________________
Hin stórmerka bók Dr. Magnúsar Jónssonar um Hallgrím
Pétursson æfi hans og starf, er H. F. Leiftur í Reykjavík
gefur út, og kostar á íslandi kr. 150.00 fæst hjá útgefendum
í Reykjavík vestur um haf send fyrir $10.00 fyrirfram borg-
un. Þessi vildarkjör eru að þakka milligöngu höfundarins
Dr. Magnúsar Jónssonar.