Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1936, Blaðsíða 5

Sameiningin - 01.06.1936, Blaðsíða 5
95 okkur hefir tekist að rækja gamlar og góðar skyldur, alþektar og marg-viðurkendar; en geipa aftur minna, ef til vill, um hugsæ efni og þokukend, eins og sigurdraumana um ný ráð og nýjar dáðir, sem eiga að rætast — á morgun. Það er ein- hvers konar heilnæmiskraftur í sannleikanum, segja menn, þegar hann er sagður upphátt í fullri hjartans alvöru. Og í þessum efnum ætti hreinskilin játning að vera heilsusamleg, ekki aðeins fyrir sál einstaklingsins, heldur fyrir mannfélag- ið í heild sinni. Eða svo finst mér. Til þess þá í það minsta rétt einu sinni að láta breytni fylgja kenningu, vil eg koma hér með nokkur atriði úr eig- inni reynslu minni. Ljós dæmi, sem hitta naglann beint á höfuðið, eru að minni hyggju betri til varnaðar og leiðrétt- ingar, heldur en háfleygt og reikandi fimbulfamb eða sniðug- ustu röksemdir. Bið eg þá lesandann að fylgjast með mér og skoða sjálfan sig eins og krafinn reikningsskapar í hverju atriði, og hugsa sér, ekki hvað hann mundi hafa gjört, heldur hvað hann hefði átt að gjöra. Fijrsta dæmi. í stórbæ í Suðurríkjunum, þar sem eg áður fékst við líknarstarf, vissi mannkærleikurinn ekki af Ieiðari hjúum, heldur en sjúkum og visnum lasarusi nokkr- um og konu hans, kerlingar-norn, sem ók honum fram og aftur um strætin í gömlum stólvagni. Manntetrið var bók- staflega kaunum hlaðinn frá hvirfli til ilja. óhreinar l'ata- druslur héngu utan á þeim báðum, ataðar í tóbakslegi og matardrefjum. Þau höfðust við í fúlum, kámugum loft- klefa, í leiguhúss-skrifli, á þriðja stræti frá “mesta sölutorgi heimsins.” Einu sinni rakst eg á þessi hjú, þegar Magga var að losa bóndaflikkið úr stólreiðinni, og átti eftir að bisa honum upp i gegnum dimman stigagang upp í óþrifabælið þeirra. Eg kastaði ekki á þau kveðju — systkini mín — en tuttugu og fimm centum slepti eg í krummu kerlingar og hafði mig á burt. En kirkjualin samvizkan lét mig ekki í friði; eg mátti til að “gjöra skyldu mína.” Eg fór til þeirra aftur og spurði í mjúkum lítillætisróm: “Get eg nokkuð hjálpað? Hafið þið nóg að borða? Þurfið þið meðul?” En svarið kom mér á óvart. “Nei, við þurfum ekki neitt,” rumdi snúðugt í kerling- unni. “Bara hjálpaðu mér til að koma þessu”—svo sem hún kvað á — “karl-óféti upp þennan stiga!” Ekki nema það þó! Að taka nýþvegnum lófum í óhreina, sveituga handarkrika, og tosa þessu kaunuga flikki upp í krubbuna hans — það var alt og sumt. Opnar skrámur,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.