Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1939, Page 3

Sameiningin - 01.01.1939, Page 3
^auu'iningin. Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga. gejiff út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. % Vestrheimi Ritstjórar'. Séra Kristinn K. Olafson, 3047 W. 72 St., Seattle, Wash., U.S.A. Séra Guttormur Guttormsson, Minneota, Minn., U.S.A. Séra Rúnólfur Marteinsson, 49 3 Lipton St., Winnipeg. Féhirðir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. 54. ÁRG. WINNIPEG, JANÚAR, 1939 Nr. 1 Bowery missíónin Fyrir mörgum árum álpaðist dauðadrukkinn sjómaður inn í hús eitt í hinu alræmda neyðar- og spillingar-hverfi New York borgar, sem kallað er Bowery. Maðurinn hét John Parkinson. Hann var ekki fyr kominn inn úr dyrun- um en hann féll á gólfið flatur og stein-sofnaði. Hefði þetta hús verið einn af þeim daunillu gildaskálum, sem þar eru á hverju strái, þá hefði maðurinn raknað úr rotinu næsta morgun annað hvort í fangelsi, eða þá meiddur og féflettur einhversstaðar undir beru loi'ti. Svo fer mörgum, sem ætla að gjöra sér glaða kvöldstund i því sóðahverfi. En þegar John Parkinson vaknaði, var hann undir hreinum rekkjuvoðum i þokkalegu herbergi; og yfir honum stóð hávaxinn maður, góðlegur á svip, og spurði hrosandi: “Veiztu nú, piltur minn, hvar þú ert?” Það vissi hann auðvitað ekki. “Þú ert í guðshúsi, góðurinn minn,” sagði heimamaður. “Þú drakst þig í rot í gærkvöldi, en nú drekkur þú aldrei framar. Þetta er Bowery missíónin, sonur minn. Við erum hér til að hjálpa þér. Við biðjum fvrir þér, og svo biður þú sjálfur auðvitað, og þú munt fara héðan nýr og hetri maður.” Sá, sem talaði var séra James W. Childs — forstöðu- maður þessarar stofnunar frá 1880, þegar hún var sett á laggirnar og þangað til hann dó árið 1895. — Það sem

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.