Sameiningin - 01.01.1939, Blaðsíða 5
3
með kaffinu, tvær brauðsneiðar með kjötflögu á milli. Eftir-
sóknin eins mikil og áður; og enginn veit nema Guð einn,
hve oft hefir verið þakkað af hrærðum huga fyrir þessar
litlu góðgjörðir.
Stofnunin var tveim árum síðar flutt í stærra og betra
hús, sem áður hafði verið alræmd “sönghöll” og óreglu-
stía. Húsið var endurbætt og búið nýjum húsgögnum. Þar
voru svefnsalir stórir og með mörgum rekkjum, kapella,
lestrarsalur og matsölustofa. Gátu þar bláfátækir menn
fengið máltíð og gistingu fyrir litla borgun. Dr. Klopsch
útvegaði ágætt pípuorgel í kapelluna; hafði það áður verið
í bænasal Princeton háskólans. — í þessari byggingu hafði
missíónin aðsetur þangað til árið 1905 að hún var flutt i
annað hús ennþá stærra þar í Bowery hverfinu. Hefir
hún átt það heimili síðan.
Skömmu eftir að dr. Klopsch tók að sér þessa missíón
fyrir hönd hlaðsins Christian Herald, þurfti hann að ráða
nýjan forstöðumann. Sá sem til þess var valinn var séra
John Hallimond, góðkunnur prestur og mannvinur frá
Lundúnaborg. Stofnunin tók miklum framförum eftir það;
undir hans umsjón hlaut hún þá frægð sem hún hefir haldið
síðan. Nafntogað fólk fór að veita starfinu eftirtekt, þar
á meðal Helen Gould, dóttir auðmannsins mikla. Sálma-
skáldið Fanny Crosby orti þar eitt af ljóðum sínum, að
sagt er. William Taft, Bandaríkjaforseti, heimsótti stofnun-
ina. Frægustu söngvarar og kennimenn hafa látið þar til
sín heyra; Billy Sunday heimsótti missíónina og flutti
ræðu fyrir vistmönnum árið 1933, í siðasta skiftið, sem
hann kom til New York. — Ráðskonan, Mrs. Bird —
“Mother Bird” var hún oftast kölluð — var ráðin þangað
á forstöðuárum Hallimonds. Hún varð brátt nafntoguð
fyrir starf sitt á heimilinu. Séra Charles J. St. John tók
við forstöðunni á eftir Hallimond og heldur enn þeim
starfa. Og vinsældirnar eru enn að aukast.
Ótal margar sögur mætti segja af mönnum þeim, sem
missíónin hefir hjálpað, sumar átakanlegar, sumar hjart-
næmar og upplyftandi. Má með sanni segja, að hver maður
þar eigi sina sögu . Fæstir af þeim eru New York menn.
Þeir koma alls staðar að, úr öllum ríkjum landsins og
frá öllum álfum heims. Þegar sjómenn eða ferðalangar
stranda félausir í New York, þá er þeim skjólið vísast þar
sem missíónin er og þangað sækja þeir í stór-hópum dag-