Sameiningin - 01.01.1939, Blaðsíða 9
7
komst aldrei til heilsu aí'tur; en hún bar þrautir sínar með
léttum huga, af því að vonirnar höfðu ræzt. Hún sagði við
manninn sinn hvað eftir annað: “Nú ertu góður maður,
John!” Og lit frá þeirri hugsun sofnaði hún í friði, þegar
stundin kom.
John Goode varð ekki aðeins góður maður; hann varð
ötull starfsmaður fyrir missíónina. Ef hann heyrði um ein-
hvern sérstakan óláns-garm í óþrifabælum eða sjúkrahúsum
eða fangelsum borgarinnar, einhvern, sem enginn annar gat
komið neinu tauti við, ])á var hann þangað kominn og sagði
manninum frá sinni reynslu. Hann varð nafnkunnur um
öll austurríkin. Og þegar hann sagði sögu sína, þá gleymdi
hann ekki að þakka Guði fyrir Bowery missíónina.
Það er stór-merkileg saga, sem segja mætti af þessari
stofnun með tölustöfum. Hún hefir árlega útvegað sjö til
átta þúsund mönnum atvinnu, hjálpað hálfu þúsundi til að
komast heim til sín, lagt til pappír og frímerki fyrir fimm
til sex þúsund sendibréf; veitt einum áttatíu þúsundum
næturgistingu, og annast fimm hundruð og tuttugu bæna-
höld eða guðsþjónustur fyrir nálega hundrað og fjörutíu
þúsund manns yfir árið. — í þessu, sem síðast var nefnt,
liggur aðal verkið. Missíónin er trúarleg stofnun öllu öðru
fremur, trúboðsstöð. Dýrmætasti árangurinn af öllu heun-
ar starfi eru kristnir menn eins og John Goode, Victor
Benke og John Parkinson, menn, sem hún hefir hjálpað til
að finna Guð og sigrast á óvinum lífsins.
(Eftir frásögnum í Christian Herald)
G. G.
Til kaupenda Sameiningarinnar!
Með línum þessum vil eg vekja athygli kaupenda Sam-
einingarinnar á því að enn eru margir sem ekki hafa greitt
áskriftargjöld; vegna framtíðar mánaðarritsins er það óum-
flýjanlegt, að hver einasti og einn kaupandi þess verði
skuldlaus við það er næsta kirkjuþing kemur saman. Send-
ið áskriítargjöld yðar nú þegar til féhirðis:
MRS. B. S. BENSON
695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.