Sameiningin - 01.01.1939, Síða 14
12
skipuð og yi’ir því fólki hvílir sami saknaðarþunginn —
sama klökkva viðkvæmnin — sama samúðarkendin, sem
þetta hryggilega slys hafði vakið í hjörtum allra íslenzkra
manna og kvenna. Kisturnar fjórar standa hlið við lilið
framan við gráturnar. Ástvinir, hryggir en hógværir,
horfa tárvotnum augum á kistu eiginkonunnar, móðurinn-
ar, dætranna og systranna, sem innan stundar verða huldar
moldu, og móðirin aldurhnigna, sem þar er að fylgja sjö-
unda barninu sínu af átta til grafar, er enn hugprýðin sjálf
og tekur þessu síðasta aðkasti sem sannri hetju sæmir.
Hún og þau vita, að þó sorgin sé þung og skilnaðurinn sár,
þá lifir Guðrún og þær allar á bak við sorgar skýið, og minn-
ing og mynd hennar og þeirra læsir sig í gegnum það til
syrgjenda, ástvinanna — til allra íslendinga — eins og Ijós
gegnum myrkur.
Við minningarathöfnina í kirkjunni töluðu þrír prest-
ar: séra Friðrik Hallgrímsson, séra Sigurður í Hraungerði
og séra Friðrik Friðriksson í Reykjavík. Við gröfina flutti
Sigurbjörn Á. Gíslason nokkur orð þrungin af viðkvæmni
og trúar öryggi.
Daginn eftir jarðarförina færðu umboðsmenn 17 félaga
Áss-fólkinu 3,000 kr. til stofnunar á minningarsjóð um
Guðrúnu Lárusdóttur. í ávarpi sem fylgdi stendur:
“Herra cand. theol.
Sigurhjörn Á. Gíslason, Ási.
Til þess að þakka hið mikla og óeigingjarna starf konu
yðar, frú Guðrúnar Lárusdóttur, alþingismanns, í þágu
menningar- og mannúðarmálefna, hafa undirrituð kvenfé-
lagasambönd og önnur félög lagt fram hvert sinn skerf til
minningargjafar um frú Guðrúnu.”
Frú Guðrún var fædd að Valþjófsstað í Fljótsdal 8.
janúar 1880. Foreldrar hennar séra Lárus Halldórsson og
þá lifir Guðrún og þær allar á bak við sorgar skýið, minn-
rausn, höfðingsskap og gáfur. Hún ólsl upp hjá foreldrum
sínum í Reyðarfirði þar sem faðir hennar var fríkirkju-
prestur í allmörg ár, en fluttist með þeim og systkinum
sinum til Reykjavíkur 1899. Árið 1903 giftist hún cand.
theol. Sigurbirni Ástvaldi Gislasyni. Varð þeim tíu harna
auðið. Þrjú þeirra dóu ung, tvær dæturnar með móður
sinni í Tungufljóti. Fimm eru á lífi, fjórir synir: Lárus,
Halldór, Gisli og Friðrik, og ein dóttir, Lára Kirstín.