Sameiningin - 01.01.1939, Side 15
13
í sambandi við hjartapunkt kristindómsins stendur
hugsjón frelsisins. Maðurinn er, eða ætti að vera, frjáls.
Til frelsis leysti Kristur mennina, segir Páll í bréfi sínu til
Galatamanna, þegar hann er að vara þá við að láta flækjast
í Jögkænsku Gyðinganna. Páll þekti áhrif hinna lögboðnu
trúarbragða, en Kristur valdi sér verlrsvið og umhverfi, þar
sem andlegur þroski hans gat notið sín til fulls. Hann
gjörist því talsmaður frelsisins frá byrjun.
Frjálslyndið á elvkert skylt við hugarstefnu þá, sem
engin bönd viðurkennir. Maður sá, sem breytir eftir þvi
sem honum sjálfum bezt þykir, verður brátt að bráð sinna
eigin ástríðna. Raunverulegt frelsi nýtur sín aðeins innan
sinna eigin vébanda. Jóhannes getur því réttilega talað um
hin alfullkomnu lög — lög frelsisins. Kristindómurinn
leggur áherzlu á, að allir menn eigi að vígja líf sitt til góðs
sambræðrum sínum og systrum í mannfélagi því, sem hver
og einn Jjýr í, og liennir einnig, að vér séum frjálsastir og
njótum okkar bezt, þegar að vér þjónum honum, sem sjálfur
gaf Jíf sitl í þjónustu hins fullkomna frelsins.
INNRl SKORÐUR
Sökum þess, að hver og einn af oss er eining í stærri
heild, þá verðum vér að láta oss varða hagsmuni heildar-
innar. Þjóðirnar semja og leiða í gildi lög, sem eru varnar-
múr sameiginlegri vell'erð þegna þeirra, og hver og einn at
þegnum þjóðfélagsins verður að hlýða þeim; lög þau eru
nokkurs konar girðing, innan hverra vébanda að frelsi
einstaklinganna getur notið sín. En þessi girðing eða
skorður missir brodda sína, sein stundum eru máske sárir
í byrjun, þegar að menn venjast lögunum og þau samlag-
ast hinum innra manni þegnanna, og í samræmi við eðli-
lega samstemning laganna og hins innra manns hverfur
líka öll þvingunartifinning í sambandi við þau. Þróun
hins sanna frelsis er undir því kornin hversu vel að mönn-
um tekst að beygja kné síns innra manns fyrir því, sem
meira er en maðurinn sjálfur — fullkomnu frelsi. í
fljótu bragði virðist þetta um lögin og frelsið vera mótsögn,
en við nánari athugun verður sá mælikvarði prófsteinn
frelsisins, og það er einmitt út frá því sjónarmiði að Páll