Sameiningin - 01.02.1939, Page 9
23
maður. Orðgnótt séra Matthíasar á íslenzku máli alveg
i'rábær. Eða svo virtist mér það í þetta eiua sinn sem eg
fékk að lieyra til hans á ræðupalli, sem var við hátíðahald
á Seyðisfirði sumarið 1900, þegar eg það ár var staddur á
ferðalagi heima á íslandi.—
Þegar samkoman var búin hópuðust menn utan um
Brvan til að taka í hönd honum. Var hann hægur í fasi
en brosleitur og ánægjulegur. Tók hann í hönd hverjum
á fætur öðrum og sýndist vera jafn alúðlegur við alla. Var
eg í eitt sinn kominn svo nærri Bryan, að eg taldi mér
víst að geta náð í hönd hans. Lék mér nokkur forvitni á
að kynnast handtaki hans. En um leið vildi eg eitthvað
segja á þá leið, að eg vonaðist eftir að hann ætti enn eftir
að verða forseti Bandaríkjanna. Vildi eg segja þetta lát-
laust og laglega og var að velta orðalaginu fyrir mér í
huganum. Þegar svo setningin var orðin eins og eg vildi
liafa hana og eg var að þokast nær og nær Bryan, kom lyrir
undarlegt atvik. Eg fékk skyndilega aðvörun: “Bryan will
never he president!” (Bryan verður aldrei forseti). Orðin
heyrði eg greinilega. Áherzlan var á orðinu “never” (aldrei).
Upphátt heyrði eg þetta ekki, heldur eins og inni i sjálfum
mér. Þekti eg þetta nokkuð af reynslu áður, þó eg hafi
fremur forðast að heyra raddir en að leggja mig eftir því.
Munu sálarfræðingar flestir vára menn við að hlusta á
raddir, er menn hyggja sig heyra, með því það getur farið
út í öfgar og orðið hættulegt. Mun helzt vera að marka
það, sem kemur til manns alveg ósjálfrátt og án eftirgrensl-
unar, eða gengur jafnvel á móti því sem maður vill að verði.
eða maður hel'ir hugsað sér að hljóti að vera eða verði.
Svo var með hugsanir mínar að því er Bryan snerti. Mér
fanst það bæði líklegt og æskilegt að hann yrði forseti.
Gladdi það mig talsvert að geta átt von á þessu. Urðu það
því vonbrigði fyrir mig að heyra, að hann yrði aldrei forseti.
Hafði þetta þau áhrif á mig, að eg gekk með hálfgerðri
ólund til hliðar og reyndi aldrei að taka í hönd hans.
Ásakaði eg þó sjálfan mig á eftir fyrir þessa ólundar aðferð,
að revna ekki meir að ná í hönd Bryans, því maðurinn var
jafn göfugur og merkilegur maður fyrir því, þó það ætti
ekki fyrir honum að liggja að verða æðstur valdsmaður í
einu af hinum voldugustu löndum heimsins.
Árið 1908 var Bryan útnefndur í þriðja sinn til forseta,
á móti William Howard Taft, en varð undir í þeirri viður-
eign. Eftir það var hann aldrei í kjöri.