Sameiningin - 01.02.1939, Blaðsíða 10
24
En þrátt fyrir ófarir Bryans í forsetakosningum mun
nafn hans lengi uppi verða í sögunni, sem göfugs og mikils
manns, er bæði var mikilhæft vitni Jesú Ivrists, og kom
mörgu til vegar, sem einn hinn frægasti umbótamaður í
mannfélagsmálum á hinni viðburðaríku æfi sinni.
Kriátinn poátuli
Eftir séra Egil H. Fáfnis
Öllum er íslenzku lesa er, að eg hygg, kunnugt um æfi
og starf Sundar Singh, hins indverska trúarleiðtoga, sem
kristni boðaði með svo miklum árangri í sínu eigin landi
og einnig hafði áhrif á kristinn heirn víðsvegar utan sins
lands,; enda af sumum, sem um hann hafa skrifað, nefndur
“Postuli Austur- og Vesturlanda.”
Nokkur ár eru nú síðan hann leið, og varð kristnum
mönnum skarð fyrir skildi er hans rnisti við. En nú birtir
aftur yfir. Á nýafstaðinni Mildmay Conference í Lundúnum
var skýrt frá ungum Sikh, sem er farandprédikari í hinu
nýja fylki Sind á Vestur-Indlandi. Fyrstu afleiðingar
starfsins eru þær að í þeim landshluta þar sem áður seldust
aðeins 500 Biblíur, seldust síðastliðið ár 12,000.
Þessi ungi Sikh gekk kristninni á hönd er hann fvrii'
nokkru síðan var á leið með gufuskipi frá Englandi til
Canada, og las sér til dægrastyttingar kristileg rit. Hann
er útskrifaður af búnaðarskólum í Lundúnum og Toronto
og ætlar að stofna til kristins þorps í þessu fylki Indlands,
Sind.
í ritinu “World Dominion” farast McCheyne Paterson
þannig orð um hinn unga postula. “Hann hefir brennandi
trúaráhuga eins og sannur postuli. Hann prédikar hinn
krossfesta Krist og segir öllum kristnum, að þeir sjálfir
verði að finna til nauðsynarinnar um syndafyrirgefningu,
ef þeir ætlist til að þeir, sem ekki eru kristnir finni til
hinnar sömu tilfinningar. Eins og Sadhu Sundar Singh
gjörði áður ferðast þessi Sikh meðal kirkna og safnaða í
Punjab fylki. Lifnaðarhættir hans vekja og undrun fólks-
ins. Hann biður aldrei um eyrisvirði; tekur ekki við pen-
ingum nema fyrir farmiða með járnbrautum, og samskot
eru aldrei tekin á samkomum hans. En með látlausum og
einföldum orðum segir hann frá því hvernig Kristur hafi
fylt líf sitt hamingju og sælu, sem hann segist hafa árang-
urslaust leitað að í trúarbrögðum Sikhanna.”