Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1939, Page 11

Sameiningin - 01.02.1939, Page 11
Döggin Grátandi barn hleypur til föður síns og biður um fyrir- gefningu. Faðirinn vefur barnið upp að brjósti sér: “Já, af öllu hjarta fyrirgef eg þér. Guð blessi þig, elsku barnið mitt, og leiði þig á vegum dygða alla æfi.” Himnesk sæla fyllir sál barnsins. Sál og líkami titra af gleði. Sælt er að hvíla fyrirgefinn í föðurfaðmi. Aldrei skilur önd mín betur, að ertu Guð og faðir minn en þegar eftir villuvetur mig vermir aftur faðmur þinn.” f 32. sálmi Davíðs er lýsing á ástandi syndarinnar og svo á ástandi fyrirgefningarinnar. Syndarinn er í kvölum. Syndin þjáir hann og lamar. “Meðan eg þagði, tærðust bein mín, er eg kveinaði liðlangan daginn, því að dag og' nótt lá hönd þín þungt á mér.” En svo ltom stefnubreyting. Hinn syndugi maður sá nýtt ljós. Hann tók aðra stefnu, sneri við á leið sinni. “Þá játaði eg synd mína fyrir þér.” Þá varð sólskin. Ský synda og sorga voru öll horfin. Hvílík dýrð. Já, “sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin.” Þetta verður oft dásamlegt hlutskifti einstaklinga og stundum einnig þjóða. f 14. kapítula bókar sinnar talar spámaðurinn Hósea um þennan mun á ástandi syndar og fyrirgefningar. “Snú þú við, ísrael, tii Drottins Guðs þíns. Hverl'ið aftur til Drott- ins. Segið við hann: fyrirgef með öllu misgjörð vora og ver góður.” Þessi hvöt verður að framkvæmd. Sólin bræðir ísinn. Líf færist í kaldar æðar. Vetur verður að sumri. Fólk yfirgefur skurðgoðin, og hverfur aftur til hins eina, sanna, lifandi Guðs. Velþóknun Drottins hvílir yfir afturhvarfi þjóðarinnar. Við það fyllist spámaðurinn guðmóði. Unaður gagn- tekur sál hans. Hann verður eins og annar maður: nýtt líf streymir í æðum hans og guðdómlegt skáldamál flýtur af vörum hans. Guð segir lyrir munn hans: “Eg vil verða ísrael sem döggin.”

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.