Sameiningin - 01.02.1939, Page 12
26
Þar sem lítið er um regu verður hver dropi, sérhver
vökvi dýrmætur. Döggin þar er lífgjafi, og í raun og veru
er döggin víðast og oftast metin hæði fyrir fegurð og nyt-
semi. Henni er líkt við glitrandi perlur — og menn hugsa
um hana sem svaladrykk jurtanna; en að sjálfsögðu er hún
því meira metin sem minna er af annari vætu. Hér er þetta
dæmisaga um Guð. Hann vill vera ísrael eins og döggin,
svölun, endurnæring, líf. Og árangurinn er fljótt augljós.
fsrael skal blómgast sem lilja og skjóta rótum sem Líbanon-
skógur. ísrael skal verða eins og undratré, sem breiðir
greinar dýrðar sinnar í allar áttir, fagurt og tignarlegt í
þeim mætti, sem Guð hefir gefið og blessandi alla sem búið
geta í skjóli þess. Skáldlegt auga spámannsins sér jiessar
myndir al' lifandi útstreymi hins eilífa anda, sein öllum vill
bjarga og alla hefja til farsældar um tíma og eilífð.
Guð vill láta þessa fegurð falla yfir hverja þjóð, hvern
söfnuð, hvert heimili, sérhverja einstaklings sál. Viltu
ekki opna glugga sálar þinnar og lol'a fegurðinni að streyma
inn, dögginni himnesku að svala anda þínum?
“Þú sendir, Drottinn, dögg af hæðum,
í dropum smáum niður á jörð,
að kveikja líf í köldum æðum
og klaka leysa böndin hörð.
Lát náðar daggardropa þinn
svo drjúpa í mína sálu inn.”
Guð vill fyrirgefa þér, líkna og blessa. Elskan eilífa
vill alla verma. Alt hans eðli segir:
“Eg vil vera þér eins og döggin,” ekki einungis ísrael
heldur öllum þjóðum, öllum mönnum. Þessi orð eru töluð
til þín, þú sem les. Guð vill vera þér eins og döggin, gefa
þér líf og sælu til eilífðar. Taktu á móti lífgjafa þínum.
Allir þeir, sem hrakist hafa í dimmviðri sorga, efa-
semda eða glæpa og svo hafa hrópað til himnaföðursins,
eins og glataði sonurinn, hafa fundið fyrirgefninguna eins
og himnasælu, og nýja lífið í Guði meiri unað en nokkuð
annað sem þeir höfðu reynt á jarðneskri vegferð sinni.
Fyrirgefningin er dögg af himnum.
R. M.