Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1939, Page 16

Sameiningin - 01.02.1939, Page 16
30 Gyðingum hneyksli, en heiðingjum heimska Þessi orð eru frá Páli postula og standa rituð í fvrra Korintubréfinu. Hann segir: “Vér prédikum Krist kross- festan: Gyðingum hneyksli en heiðingjum heimska.” Með öðrum orðum, það voru til menn, bæði Gyðingar og heið- ingjar, sem ekki höfðu fengið skilning á kristindóminum. öllum slíkum mönnum var kross Jesú Ivrists (hjartað í kristindóminum) hneyksli eða heimska. Það þarf enginn að furða sig á þessu. Þetta ástand, skilningsleysið, er ekki einstakt við kristindóminn. Það inun eiga sér stað, að einhverju leyti, á öllum sviðum mann- legrar hugsunar. Sumir menn eru hlt skildir af fjöldanum. Ein orsök þess er sú, að miklum mönnum, frumlegum og sérkenni- legum, er það eðlilegt, að færa hugsanir sínar í óvanalegan búning, og aðrir menn hafa þá ekki sál til að fylgja þeim á vængjaflugi þeirra. Kvartað var undan því, hér vestra, að Stephan G. Stephanson, skáld, væri mjög torskilinn. Lík- lega var það veikleiki frumleika hans, að hann streittist ekki nógu mikið við það að gjöra hugsanir sínar almenn- ingi ljósar, en að mestu leyti var það vegna þess, að menn brast skilning til að ná inn í hugsanaheim hans. Sama var tilfellið með séra Jón Bjarnason. Það var skilningsskortur, að menn, sumir hverjir, náðu ekki tökum á hugsana-auði hans. Þetta er ennfremur tilfellið með þær íþróttir anda og líkama sem menn hafa tamið sér. Það sem einum er Ijóst er öðrum hulin ráðgáta. Heimur ljóða er sumuin opin bók þar sem alt liggur í augum uppi þó öðrum sé þar alt óskilj- anlegt. Sumir hafa frábæran skilning á sönglistinni, meta hana og skilja l'rá blautu harnsbeini alveg eins og þetta sé lagt sem sérstök gáfa í eðlisfar þeirra. Fyrir öðrum er þar eins og alt sveipað eintómu myrkri. Einn hinna frægustu amerískra rithöfunda, Nathaniel Hawthorne, líkir kristindóminum við guðshús með dásam- lega fögrum gluggum. Sumir þeir gluggar eru, eins og al- kunnugt er, meðal dýrðlegustu listaverka mannkynsins. Hugsum oss sólskinsdag á miðju sumri. Vér stöndum and- spænis einni hinni tignarlegustu dómkirkju i Norðurálf-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.