Sameiningin - 01.11.1942, Qupperneq 14
140
gildur meðlimur sambandsins. Þessi tillaga tók eflaust
tillit til þeirrar íhaldssemi, sem er hrædd við að breyta
nokkru. Allsnörp senna var um þetta. Úrslitin urðu að
ráði stjórnarnefndar var fylgt og boðinu um fulla hlutdeild
hafnað. Eg var einn af þeim, sem taldi þetta misráðið. Eg
hefði kosið að stærra einingarspor hefði verið stigið. En
þrátt fyrir það er mér ljóst að það, sem gert var, miðaði
lengra til einingar en nokkuð, sem áður hefir verið gert.
Það var farið hálfa leið, en ekki alla. Á sínum tíma verður
síðasti áfanginn farinn og fullu sambandi náð. Rás tímans
styður þá, sem hiklaust stefna að samvinnu með öllum
þeim, er viðurkenna Krist sem Drottinn og frelsara.
Luíheran World Aciion
Þetta er samvinna lútersku kirkjudeildanna í Ameríku
um að verða að liði í heimsþörfinni miklu, bæði líðandi
mönnum, sem hægt er að ná til, og kristilegu starfi, sem nú
er á vonarvöl vegna ófrðiarins. Trúboðsstarf, sem slitið er
úr sambandi við heimalöndin, er haft sérstaklega fvrir
augum. Norska stjórnin á Englandi metur svo mikils starf
norsku trúboðanna út um lönd heimsins að hún hefir veitt
ákveðinn styrk þeim til viðhalds ár eftir ár. Menn minnast
þess einnig að í hinni merku ræðu er Wendell Willkie flutti
nýverið eftir að hann var heim kominn úr leiðangri sínum
hinum mikla, mintist hann þess að Ameríka ætti mikla
safnþró veivildar meðal þjóða heimsins og að trúboðarnir
héðan með óeigingjarnri þjónustu hefðu lagt þar til ekki
lítið. Ef kristileg áhrif og kenning eiga að verða heiminum
til fullrar bjargar, verður hvorttveggja að berast á vængj-
um kærleiksríkrar þjónustu. Kirkjan í Ameríku hefir sér-
stakt tækifæri í þessu efni nú. Kristilegur bróðurkærleikur
er lykill að flestum dyrum. Lúterska kirkjan er í þessu
efni að ganga á undan. Það er fagnaðarefni að á öllum
þingum kirkjunnar fær þetta hinn fylsta byr. Svo þarf
það einnig að verða heimafyrir í hverju kirkjufélagi og
söfnuði.
Velferð hermanna vorra og herleiðing iðnaðarins
Hervæðing þjóðanna og gjörbreyting alls iðnaðar í
þarfir styrjaldarinnar, hefir haft þá byltingu í för með sér
að gjörbreyta öllum staðháttum lífsins fyrir vaxandi brot
þjóðanna. Fyrst og fremst slítur hersöfnun æskumennina