Sameiningin - 01.11.1942, Side 13
139
ar en nokkru sinni áður. Aukheldur Missouri sýnódan átti
vingjarnlegan talsmann á þinginu, Dr. Graebner, þó ekki
hefði hann beint umboð kirkju sinnar. Maður frá þeim
hafði ekki komið á þing U.L.C.A. áður eða þeirra deilda er
það mynduðu síðan 1874. Dr. Walther kom þá á þing
General Council. Umboðsmenn Augustana sýnódunnar
sænsku, norsku kirkjunnar og American Luiheran Church,
mæltu allir sama máli. Þeir voru allir ákveðnir talsmenn
einingar. Dr. Bergendorf frá Rock Island, sem er fyrir
Augustana College, er tígulegur á velli og í anda. Mælti
hann máli Svía sköruglega og er óhræddur við nýjar leiðir.
Dr. Martin Anderson frá Chicago var virðulegur umboðs-
maður norsku kirkjunnar. Dr. Emanuel Poppen var tals-
maður American Luiheran Church. Hann er forseti þeirr-
ar deildar og veitir viturlega forystu. Þeir kváðu allir að
einingar takmarki væri í raun réttri náð milli þessara
deilda. U.L.C.A. væri elzt í landinu eða stofnfélög þess, og
henni tilheyrandi forganga í að ákvarða frekar sameigin-
lega stefnu lútersku kirkjunnar í amerísku lífi. American
Lutheran Church hefir í liðinni tíð farið varlegast í eining-
arátt, en tilkynti nú fult kristilegt bræðralag (Pulpit and
altar fellowship) milli sín og U.L.C.A. Það, sem staðið
hefir í vegi fullrar einingar með þessum deildum hefir
verið ámóta veigamikið og það, sem borið var fram hjá oss
í íslenzku kirkjufélaginu gegn því að ganga inn í U.L.C.A.
Nýr dagur er upp runninn og nátttröll sundrungar er að
daga uppi.
Federal Council of Churches
Annað einingarmál var á döfinni. Frá upphafi hefir
U.L.C.A. átt meira samneyti og samvinnu með Federal
Council of Churches en nokkur önnur lútersk kirkjudeild.
Þetta Council er laust samband mótmælenda kirknanna,
sem allar eiga jafnan aðgang að. I gegnum þetta samband
getur kirkjan í ýmsum efnum beitt sér í einingu og með
meira krafti. Engin tilraun er gerð að sveigja neinn frá
sinni stefnu, heldur að efla samhygð og samvinnu um öll
sameiginleg velferðamál kirknanna. Formlegt boð kom
frá Federal Council of Churches til U.L.C.A. að gerast nú
að fullu meðlimur í aðalheildinni í stað þeirrar takmörkuðu
samvinnu er hefir átt sér stað (Consultative relationship).
Stjórnarnefnd U.L.C.A. lagði til að fara meðalveg, auka
samvinnuna að miklum mun, en þó ekki að gerast full-