Sameiningin - 01.11.1942, Side 18
144
menningarleg, sem öllum þeim, er láta sig varða eilífðar-
málin og andleg mál í heild sinni, er gott að íhuga og
kryfja til mergjar, ekki sízt á þessum umbrotatímum.
Djarflega eggjar t. d. prófastur Þorsteinn Jóhannesson
íslenzku þjóðina til dáða í ritgerð sinni: “Þú átt að verða
að liði.” Iturhugsuð og almenns gildis eru þessi niðurlags-
orð hans: “Þjóðin öll þarf að vaxa frá gelgjuskeiði sundur-
lyndis, yfirborðsháttar og þrekleysis, til friðsamlegs sam-
starfs og dáðríks og drengilegs lífs. Hún þarf að hefja sig
upp úr hinum sóllausu dalþrengslum meðalmenskunnar og
klífa markviss glæstar hlíðar, upp til bjartra, sóllýstra
tinda, þar sem þróast samræmi og bróðurhugur í skjóli
kristilegrar menningar.”
Þá flytur ritið sálma og kvæði trúarlegs efnis og lag
eftir séra Sigtrygg Guðlaugsson við sálminn: “Legg út á
djúpið, þú, sem enn ert ungur.”
Ársritið “Lindin” er gleðilegur vottur þess, að heima-
þjóðin íslenzka á bæði í klerka og leikmannastétt fjölda-
marga einlæga og árvaka unnendur kirkju og kristni og
annara menningarmála. Það styrkir þá sannfæring vora,
vestrænna barna hennar, að henni auðnist að sigrast á þeim
vandkvæðum, sem hún á nú við að stríða.
Mrs, K. K. Ólafson látin
Samkvæmt símskeyti frá Seattle lézt frú
Friðrika Ólafson, kona séra K. K. Ólafson, for-
seta kirkjufélagsins, að heimili sínu þar í borg-
inni á laugardaginn var, 14. nóvember. Hún
hafði háð langt stríð við vanheilsu, og verið
rúmföst nokkra undanfarna mánuði. Þau séra Kristinn og
Friðrika Björnson giftust 2. nóvember 1915. Fór hjóna-
vígslan fram í Víkurkirkju á Mountain, og þaðan verður
hún jörðuð á laugardaginn, 21. nóvember. Sameiningin
vonast eftir að geta birt nánari umsögn 1 næsta blaði um
þessa merku og mikilhæfu konu.
TILKYNNING
Þeir söfnuðir kirkjufélagsins, sem þurfa á styrk úr
Heimatrúboðssjóði að halda fyrir næsta ár, eru mintir á að
formleg umsókn um slíkan styrk verður að vera komin í
hendur skrifara Heimatrúboðsnefndar, að 776 Victor St.,
Winnipeg, fyrir 15. desember n.k.