Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1943, Page 5

Sameiningin - 01.03.1943, Page 5
 35 Taktu sem minst tillit til hinna fátæku, hrjáðu. og smáu vesalinga sem lifa og hrærast umhverfis þig. Þeir eiga að láta sér nægja molana sem falla af borðum þínum, og gömlu fötin þín sem ekki sæma lengur stöðu þinni og stétt í samfélagi mannanna. Þetta, eða þessu líkt er evangelium efnishyggjunnar, eins og hún var túlkuð af óvini mannkyns- ins í eyðimörkinni forðum, og eins og hún kemur í ljós alt fram á þennan dag. En af þessu stafar grimd og græðgi, olnbogaskot, öfund og yfirgangur meðal einstakra manna og heilla þjóðfélaga. Þessi speki er vegin, og fundin fær til þess eins að steypa heiminum í glötun. Á meðal þeirra sem eru Kristi samþykkir að nokkru leyti í þessu máli, er stór hópur mannvina og hugsjóna- manna sem öllu fremur þrá jöfnuð og réttlæti í viðskiftum mannanna. Þeir telja hina grófu efnishyggju mönnunum ósamboðna með öllu. Að vísu láta þeir sig uppruna manns- ins, eðli hans og endanlega köllun litlu skifta, en leggja þó áherzlu á að maðurinn sé siðuð vera, að hann sé meiri skynsemi gæddur en aðrar verur, að hann sé nú fyrir nokkru farinn að ganga uppréttur, og megi því ekki láta svínbeygja sig aftur í búksorg og matarstryti. Þeir vilja gjarnan lækka alla hóla og hækka allar dældir á yfirborði mannfélagsins, þannig að sá fátæki verði ríkari en hann áður var, en sá ríki fátækari, og alt stéttaskipulag vilja þeir afnema. Þeim er einkum hugleikið að annast olnboga- börn lífsins, hina fátæku, hráðu og ólánsömu. I þessu bera þeir fyrir sig orð Krists: “Hungraður var eg og þér gáfuð mér að eta; þyrstur var eg og þér gáfuð mér að drekka; gestur var eg og þér hýstuð mig; sjúkur var eg og þér vitjuðuð mín.” (Matt. 25). Þeir telja það hið fyrsta og æðsta hlutverk kirkjunnar að sinna hinum tímanlegu og líkam- legu þörfum manna, að reyna af fremsta megni að hafa göfgandi og helgandi áhrif á mannfélagsmálin í heild sinni. Þeir telja kirkjunni skylt að hafa sem mest hönd í bagga með löggjafar og framkvæmdarvaldi laga í hverri borg og bygð og vera einskonar menningarleg lyftistöng í öllum velferðarmálum manna. Vér skulum, segja þessir menn, láta oss nægja eina tilveru í senn. Trúarbrögðin hafa nægilegt verksvið þó að þau fari ekki út fyrir takmörk hins daglega lífs. Vissulega er það meira aðkallandi að sinna hinum tímanlegu þörfum mannanna, heldur en að reyna að fá þá til að tileinka sér einhverjar kenningar um dauðann, dómsdag og annað líf. “Ef þú ert Guðs sonur .. .” segir

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.