Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1943, Side 6

Sameiningin - 01.03.1943, Side 6
36 þessi stefna, ef þú hefir nokkra getu eða iöngun til um- bótaviðleitni þá gjörðu alt sem í valdi þínu stendur til að sjá um að aðrir menn geti líka fengið að lifa eins og Guðs synir, og við lífskjör sem þeim eru samboðin. Margir þess- ara manna eru einlægir vinir kirkjunnar, og skilja og meta þau menningaráhrif sem hún býr yfir. En þeim finst að kirkjan þurfi að vakna til meðvitundar um hina eiginlegu köllun sína. Þeir telja hana sofandi og áhrifalitla stofnun, sem láti sér nægja að dvelja í musterum tilbeiðslunnar, í staðinn fyrir að starfa á akri athafnalífsins. Víða um lönd hefir þá líka auðvaldið stungið kirkjunni svefnþorn, svo að hún þorir ekki að hreyfa legg né lið þess vegna. En kirkj- unni er svo þungt um andardrátt í faðmlögum auðvalds- ins að henni liggur við köfnun. Á grænum grundum mann- úðarinnar hefir hún fyrst tækifæri til að rétta úr sér, þar er hið eðlilega andrúmsloft hennar. Kirkjan er eins og konungsdóttir í álögum, — það þarf fyrst að frelsa hana, svo hún geti notið sín. En fari nú svo, sem víða ber við, að kirkjan vilji ekki sinna köllun sinni, hlaupi hún aftur undir klæðafald auðvaldsins þegar við henni er hróflað, þá skalt þú ekki hika við að gjöra steinana að brauðum. Kirkjan er þá orðin eins og auðvaldið að steingjörvingi, er ekki á heima á vorri samtíð. Öfgaménnirnir í fylkingu jafnaðarstefnunn- ar og humanismans hrópa nú af öllum mætti: Molaðu hroka þeirra beggja, auðvaldssins og kirkjunnar, unz bæði falla að fótum þér og sleikja duft jarðar. Hafðu endaskifti á skipulagi mannanna. Auðvaldið er nógu lengi búið að sitja að völdum, og sjúga blóð og merg úr öllum fjölda manna, gefið nú öreigunum tækifæri! En þótt margt sé lofsvert í þessari mannúðarstefnu, þótt hún láti stjórnast af hinum háleitustu hvötum, þótt hún bendi á margar meinsemdir, og kirkjan geti margt af henni lært, hefir hún þann megingalla að vera of takmörkuð og einhliða. Hún snertir aðeins örlítinn hluta af allri tilveru mannsins; hún einblínir á aðeins fáein af þeim fjölmörgu orðum sem Kristur mælti um lífið og mennina. Þegar nánar er aðgætt verður það ljóst að hér er ekki um kristindóm að ræða í hinni venjulegu og sögulegu merking orðsins, held- ur kristilega siðfræði, eða pólitízka heimspeki með kristi- legum blæ. Viðleitni allra slíkra umbótamanna er í mesta máta lofsverð, og ágæt eins langt og hún nær. En frá sjónarmiði kristindómsins nær hún ekki nógu langt, vegna þess að hún lætur ekki stjórnast af sérhverju orði sem

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.